Þetta eru fimm ódýrustu sumarhús landsins

Á listanum eru fimm ódýrustu sumarhúsin á sölu um þessar …
Á listanum eru fimm ódýrustu sumarhúsin á sölu um þessar mundir. Samsett mynd

Á fast­eigna­vef mbl.is er að finna fjöl­breytt sum­ar­hús til sölu í öll­um stærðum og gerðum. Hús­in eru allt frá 13 til 315 fm að stærð og kosta frá 9.500.000 til 190.000.000 krón­ur.

Smart­land tók sam­an lista yfir fimm ódýr­ustu sum­ar­hús lands­ins sem eru á sölu um þess­ar mund­ir. 

Langa­nes 3

Langa­nes er ódýr­asta sum­ar­húsið á sölu um þess­ar mund­ir. Húsið, sem var reist árið 2003, tel­ur 15 fm og stend­ur á 8.400 fm leigu­lóð rétt við Hvolsvöll.

Ásett verð er 9.500.000 krón­ur. 

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Langa­nes 3

Húsið var reist árið 2003.
Húsið var reist árið 2003. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Fossa­túns­land

Í landi Fossa­túns í Borg­ar­byggð er til sölu 23 fm sum­ar­hús ásamt 4 fm geymslu­skúr sem standa á 5.612 fm eign­ar­lóð. Sum­ar­húsið var reist árið 2003 og sam­an­stend­ur af stofu, eld­húsi og svefn­rými, en sal­ern­isaðstaða er við viðbygg­ingu.

Ásett verð er 15.900.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Fossa­túns­land

Lóðin er gróin og skjólgóð.
Lóðin er gró­in og skjólgóð. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Hjall­holt 14

Í landi Þórisstaða í Svína­dal er til sölu 24 fm sum­ar­hús á 6.650 fm leigu­lóð. Í hús­inu er eld­hús, borðstofa, baðher­bergi og svefn­rými. Með hús­inu fylgja samþykkt­ar teikn­ing­ar, annað hvort af 140 fm húsi á tveim­ur hæðum eða 70 fm ein­halla húsi.

Ásett verð er 15.900.000 krón­ur. 

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Hjall­holt 14

Húsið telur 24 fm.
Húsið tel­ur 24 fm. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Aðal­gata 6

Í sum­ar­byggð Súðavík­ur er til sölu 166 fm sum­ar­hús á einni hæð sem reist var árið 1983. Eign­in sam­an­stend­ur af inn­gangi, af­greiðslu­sal, kaffi­stofu, skrif­stof­um, geymsl­um og kyndi­klefa en hún var áður nýtt und­ir starf­semi póst/​sím­stöðvar og spari­sjóðs.

Ásett verð er 16.000.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Aðal­gata 6

Húsið stendur í eldri bæ Súðavíkur.
Húsið stend­ur í eldri bæ Súðavík­ur. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Sig­ur­hæð

Á flott­um út­sýn­is­stað í um fimm mín­útna fjar­lægð frá Dal­vík er til sölu 35 fm sum­ar­hús sem reist var árið 2000 og stend­ur á 1.625 fm eign­ar­lóð. Tvö svefn­rými eru í hús­inu ásamt sal­erni, eld­húsi og stofu. Á lóðinni er einnig 15 fm ein­angrað smá­hýsi.

Ásett verð er 16.900.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Sig­ur­hæð 0

Húsið stendur á fallegum útsýnisstað.
Húsið stend­ur á fal­leg­um út­sýn­is­stað. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda