Elísabet og Daníel selja enn eina perluna á Seltjarnarnesi

Elísabet Alma Svendsen og Daníel Bjarnason hafa innréttað húsið á …
Elísabet Alma Svendsen og Daníel Bjarnason hafa innréttað húsið á glæsilegan máta. Samsett mynd

Elísa­bet Alma Svendsen, hönnuður og eig­andi Lista­vals, og Daní­el Bjarna­son tón­listamaður hafa sett ein­býl­is­hús sitt við Val­húsa­braut á Seltjarn­ar­nesi á sölu. Húsið hafa þau inn­réttað á afar sjarmer­andi máta, en það tel­ur 242 fm og var reist árið 1958.

Elísa­bet og Daní­el bjuggu áður við Tjarn­ar­stíg á Seltjarn­ar­nesi, en þau keyptu húsið af fyrr­ver­andi for­seta­hjón­um, Guðna Th. Jó­hann­es­syni og El­izu Reid, árið 2020. Þau tóku húsið í gegn og var út­kom­an sann­ar­lega glæsi­leg, en húsið settu þau á sölu í ág­úst 2023 og var það keypt af fé­lagi Þóris Snæs Sig­ur­jóns­son­ar kvik­mynda­fram­leiðanda. 

Fag­ur­ker­arn­ir kunna greini­lega vel við sig á Seltjarn­ar­nesi, en áður en þau keyptu hús fyrr­ver­andi for­seta­hjón­anna bjuggu þau í fögru ein­býli við Miðbraut á Seltjarn­ar­nesi sem þau tóku einnig í gegn. Húsið settu þau á sölu í ág­úst 2020.

Fal­leg list og form­fög­ur hús­gögn

Fal­leg lista­verk og form­fög­ur hús­gögn eru í for­grunni í hús­inu við Val­húsa­stíg, en það stend­ur á 825 fm lóð með fal­legu út­sýni til sjáv­ar og fjalla. Húsið er á tveim­ur hæðum og stát­ar af fimm svefn­her­bergj­um og einu baðher­bergi.

Borðstofa og stofa eru samliggj­andi í rúm­góðu og björtu al­rými á efri hæðinni. Þar er auk­in loft­hæð og gólfsíðir glugg­ar sem gefa rým­inu mik­inn glæsi­brag. Þaðan er út­gengt á sval­ir til suðurs með fal­legu út­sýni. 

Fallegir hönnunarmunir fá að njóta sín.
Fal­leg­ir hönn­un­ar­mun­ir fá að njóta sín. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Á hæðinni er par­ket úr hnotu í al­rými, ull­arteppi í her­bergj­um og nátt­úru­kork­ur í eld­hús­inu. Þá er sér­smíðuð inn­rétt­ing í eld­hús­inu með fal­legri borðplötu frá Granít­stein­um sem set­ur svip sinn á rýmið. 

Ásett verð er 178.900.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Val­húsa­braut 27

Eldhúsið er rúmgott og bjart.
Eld­húsið er rúm­gott og bjart. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is
Fögur listaverk prýða veggi í stofunni.
Fög­ur lista­verk prýða veggi í stof­unni. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda