Þetta eru fimm ódýrustu einbýlin á höfuðborgarsvæðinu

Á listanum eru fimm spennandi einbýli til sölu á höfuðborgarsvæðinu!
Á listanum eru fimm spennandi einbýli til sölu á höfuðborgarsvæðinu! Samsett mynd

Á fast­eigna­vef mbl.is má finna fjöl­breytt úr­val spenn­andi ein­býl­is­húsa til sölu. Marga dreym­ir um að losna und­an hávaðasöm­um ná­grönn­um og upp­lifa aukið frelsi.

Ef þig lang­ar að geta farið að sofa snemma á kvöld­in, eða geta ryk­sugað langt fram­eft­ir án sam­visku­bits, þá finn­ur þú hér fimm ódýr­ustu ein­býl­in sem eru til sölu á höfuðborg­ar­svæðinu um þess­ar mund­ir. 

Berja­land 0

Við Meðal­fells­vatn í Kjós er til sölu 95 fm ein­býli sem reist var árið 1997. Húsið stend­ur á 3.300 fm eign­ar­lóð með fal­legu út­sýni. Húsið er klætt að hluta með stuðlabergi og krossvið, en kop­arþak er á hús­inu. Þá eru svefn­her­berg­in tvö og baðher­bergið eitt.

Ásett verð er 82.500.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Berja­land 0

Húsið stendur á fallegum útsýnisstað.
Húsið stend­ur á fal­leg­um út­sýn­is­stað. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Reykja­vík­ur­veg­ur 3

Við Reykja­vík­ur­veg í Hafnar­f­irði er til sölu 143 fm ein­býl­is­hús á þrem­ur hæðum með auka­í­búð. Húsið var reist árið 1912 og stát­ar af fjór­um svefn­her­bergj­um og þrem­ur baðher­bergj­um.

Ásett verð er 88.900.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Reykja­vík­ur­veg­ur 3

Húsið er á þremur hæðum með aukaíbúð.
Húsið er á þrem­ur hæðum með auka­í­búð. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Reykja­vík­ur­veg­ur 27

Í sömu götu er annað ein­býl­is­hús til sölu, en það er einnig á þrem­ur hæðum og tel­ur alls 154 fm. Húsið var reist árið 1925 og stát­ar af fimm svefn­her­bergj­um og einu baðher­bergi.

Ásett verð er 102.900.000 krón­ur. 

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Reykja­vík­ur­veg­ur 27

Húsið var reist árið 1925 og skiptist í þrjár hæðir.
Húsið var reist árið 1925 og skipt­ist í þrjár hæðir. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Öldu­gata 2

Við Öldu­götu í Hafnar­f­irði er til sölu 154 fm ein­býl­is­hús á þrem­ur hæðum. Húsið var reist árið 1914 og stát­ar af þrem­ur svefn­her­bergj­um og einu baðher­bergi. 

Ásett verð er 106.500.000 krón­ur. 

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Öldu­gata 2

Mikill sjarmi er yfir húsinu.
Mik­ill sjarmi er yfir hús­inu. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Fossa­tunga 39

Við Fossa­tungu í Mos­fells­bæ er til sölu 165 fm ein­býl­is­hús á einni hæð sem reist var árið 1995. Í hús­inu eru tvö svefn­her­bergi og eitt baðher­bergi.

Ásett verð er 109.000.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Fossa­tunga 39

Eignin hefur verið innréttuð á fallegan máta.
Eign­in hef­ur verið inn­réttuð á fal­leg­an máta. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda