Ísold og Una selja íbúðina í Álfheimum

Ísold Uggadóttir og Una Lind Hauksdóttir hafa sett íbúð sína …
Ísold Uggadóttir og Una Lind Hauksdóttir hafa sett íbúð sína á sölu. Samsett mynd

Kvik­mynda­gerðar­kon­an Ísold Ugga­dótt­ir og sam­býl­is­kona henn­ar, Una Lind Hauks­dótt­ir, hafa sett íbúð sína við Álf­heima í Reykja­vík á sölu. Eign­in tel­ur 95 fm og er á fyrstu hæð í fjöl­býl­is­húsi sem reist var árið 1960.

Stofa og borðstofa eru samliggj­andi í rúm­góðu og björtu al­rými. Ljúf­ur og ljós sægrænn lit­ur prýðir veggi rým­is­ins og tón­ar fal­lega við brúna viðar­tóna sem eru áber­andi í hús­gögn­um. Stór­ir glugg­ar hleypa mik­illi birtu inn í rýmið, en þaðan er einnig út­gengt á suðursval­ir.

Listaverk prýða veggi stofunnar.
Lista­verk prýða veggi stof­unn­ar.
Sægræni liturinn tónar fallega við húsgögnin.
Sægræni lit­ur­inn tón­ar fal­lega við hús­gögn­in. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is

Retró-ís­skáp­ur og fag­ur­blátt eld­hús

Eld­húsið er einnig bjart með stór­um glugga og fag­ur­blárri inn­rétt­ingu. Þá set­ur sjarmer­andi retró-ís­skáp­ur frá Smeg svip sinn á rýmið, en hann er í svipuðum sægræn­um tón og prýðir stof­una.

Eign­in stát­ar af tveim­ur svefn­her­bergj­um og einu baðher­bergi, þar af rúm­góðu hjóna­her­bergi. Ásett verð er 71.900.000 krón­ur.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Álf­heim­ar 66

Í eldhúsinu má sjá panel á veggjum.
Í eld­hús­inu má sjá panel á veggj­um. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is
Smeg-ísskápurinn setur punktinn yfir i-ið.
Smeg-ís­skáp­ur­inn set­ur punkt­inn yfir i-ið. Ljós­mynd/​Af fast­eigna­vef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda