Arkitektaíbúð með eyju á hjólum og útsýni

Eldhúsið er fallega innréttað með nútímalegu innréttingum.
Eldhúsið er fallega innréttað með nútímalegu innréttingum. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Við Kársnesbraut í Kópavogi er að finna einstaka arkitektaíbúð sem er 127 fm að stærð. Íbúðin er í húsi sem reist var 1965.

Soffía Tinna Hjörvarsdóttir arkitekt hjá Hornsteinum arkitektum og Jóhann Jökull Ásmundsson stafrænn verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg hafa endurnýjað íbúðina mikið síðan þau festu kaup á henni 2016. 

Þegar þau festu kaup á íbúðinni var innra fyrirkomulagi breytt. Hol var opnað inn í stofu og eldhús fært úr norðuaustur herbergi í miðrými. Sett var ný eldhúsinnrétting sem hefur að geyma gott vinnupláss og gott skápapláss.

Það sem vekur athygli er að eyjan í eldhúsinu er á hjólum þannig að hægt er að færa hana á milli ef vill. Það býr til meiri möguleika. 

Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Eyjan í eldhúsinu er á hjólum.
Eyjan í eldhúsinu er á hjólum. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Sólrík verönd með útsýni

Úr eldhúsinu er opið út á sólríka verönd sem er mikið notuð. Fallegt útsýni er af veröndinni og líka úr stofuglugga sem snýr í vestur út á Fossvoginn. 

Eins og sjá má er hver hlutur á sínum stað og fegurðin í forgrunni þegar kemur að vali á húsgögnum, skrautmunum og listaverkum. 

Horft úr stofunni inn í borðstofu.
Horft úr stofunni inn í borðstofu. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Stórir gluggar prýða stofuna og er úrgengi út á stórar …
Stórir gluggar prýða stofuna og er úrgengi út á stórar svalir úr íbúðinni. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Kársnesbraut 81

PH-ljósin sóma sér vel fyrir ofan borðstofuborðið.
PH-ljósin sóma sér vel fyrir ofan borðstofuborðið. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Horft inn í borðstofu.
Horft inn í borðstofu. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Kojurnar í barnaherberginu eru eins og ferð í Disney-land.
Kojurnar í barnaherberginu eru eins og ferð í Disney-land. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Stofan og eldhúsið mætast á áreynslulegan hátt.
Stofan og eldhúsið mætast á áreynslulegan hátt. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Vinnuherbergið er vel skipulagt.
Vinnuherbergið er vel skipulagt. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Húsið er málað í hvítum og bláum lit að utan.
Húsið er málað í hvítum og bláum lit að utan. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda