Við Barðaströnd 33 á Seltjarnarnesi er að finna 195,4 fm raðhús sem reist var 1966. Húsið er á þremur pöllum og vel skipulagt með nýlegum innréttingum í eldhúsi og á baðherbergi. Auk þess er garðskáli við húsið sem stækkar það töluvert.
Húsið var auglýst til sölu í ágúst og seldist strax.
Fyrir framan hús og fyrir aftan hús er myndarlegur garður. Fyrir framan hús er stórt hellulagt bílaplan, flaggstöng og töluverður gróður. Í garðinum sjálfum, sem snýr í suður, er að finna verönd, skjólveggi og mikinn gróður.
Sebra Studios ehf. hefur fest kaup á húsinu en félagið er í eigu Lúðvíks Páls Lúðvíkssonar sjónvarps- og kvikmyndaframleiðanda. Félagið greiddi 167.500.000 kr. fyrir húsið sem keypt var af Kristjáni Geir Þorsteinssyni og Rakel Viðarsdóttur.
Smartland óskar félaginu til hamingju með raðhúsið!