Retró íbúð á Njálsgötu með frönskum svölum

Stofan er hlýleg og þar má opna út á fallegar …
Stofan er hlýleg og þar má opna út á fallegar franskar svalir. Ljósið fyrir ofan borðstofuborðið heitir Caserta og hefur verið fáanlegt í versluninni Snúrunni. Ljósmynd/Lind fasteignasala

Við Njáls­götu í 101 Reykja­vík má finna sér­stak­lega heill­andi íbúð þar sem ægir sam­an gömlu og nýju á ein­stak­lega smekk­leg­an hátt. 

Íbúðin sem er 101 fm að stærð og er á ann­arri hæð í fjöl­býl­is­húsi frá sjötta ára­tugn­um. Búið er að halda í upp­runa­leg­ar inn­rétt­ing­ar eft­ir bestu getu og er eld­húsið til að mynda ein­stak­ur dýr­grip­ur. Eins má nefna stiga­gang­inn og gler­h­urðirn­ar inni í stofu.

Íbúðin er björt og fög­ur með tvenn­ar sval­ir, fransk­ar sval­ir úr stof­unni og svo litl­ar sval­ir úr hjóna­her­berg­inu. 

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Njáls­gata 59

Eldhúsið er upprunalegt. Það er fágætt að rekast á slíka …
Eld­húsið er upp­runa­legt. Það er fá­gætt að rek­ast á slíka dýr­gripi í dag. Ljós­mynd/​Lind fast­eigna­sala
Tekk hurðir eru inn í stofu sem setja fallegan svip …
Tekk hurðir eru inn í stofu sem setja fal­leg­an svip á heild­ar­út­lit íbúðar­inn­ar. Ljós­mynd/​Lind fast­eigna­sala
Stigagangurinn er óviðjafnanlegur.
Stiga­gang­ur­inn er óviðjafn­an­leg­ur. Ljós­mynd/​Lind fast­eigna­sala
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda