Kolbeinn seldi lúxusíbúð á 208 milljónir

Rut Káradóttir hannaði íbúðina. Ljós og vínkælir fylgir með í …
Rut Káradóttir hannaði íbúðina. Ljós og vínkælir fylgir með í kaupunum.

Íslenski fótboltamaðurinn, Kolbeinn Sigþórsson, hefur selt glæsiíbúð sína í Kópavogi. Íbúðin var auglýst til sölu fyrir nokkru síðan og vakti hönnunin athygli. Rut Káradóttir innanhússarkitekt hannaði íbúðina og eru fótspor hennar áberandi í allri hönnun. 

Um er að ræða 184,2 fm íbúð sem er í blokk sem reist var 2021. Allar innréttingar eru dökkar og dramatískar en íbúðin er þó ekki eins og einhver hellir því stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn. 

Kolbeinn keypti á dögunum glæsihús í Grafarvogi en húsið keypti hann af Einari Erni Benediktssyni og Sigrúnu Guðmundsdóttur. 

Borðstofuborðið og ljósið fyrir ofan fylgir líka með í kaupunum.
Borðstofuborðið og ljósið fyrir ofan fylgir líka með í kaupunum.
Í eldhúsinu eru bæsaðar eikar-innréttingar og marmari.
Í eldhúsinu eru bæsaðar eikar-innréttingar og marmari.

Nú hefur íbúðin verði seld á 208.000.000 kr. en með í kaupunum fylgir nýtt parket, ísskápur, vínkælir, þvottavél, þurrkari, borðstofuborð og ljós. 

Steinn Jónsson er kaupandi íbúðarinnar og fær hann hana afhenta 31. janúar 2025. 

Úr stofunni er fallegt útsýni út á Fossvoginn sjálfan.
Úr stofunni er fallegt útsýni út á Fossvoginn sjálfan.
Sérsmíðaðar bókahillur eru á ganginum.
Sérsmíðaðar bókahillur eru á ganginum.
Baðherberbergið er eins og listaverk með marmaraflísum og lýsingu.
Baðherberbergið er eins og listaverk með marmaraflísum og lýsingu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda