Ásta lagði fótboltaskóna á hilluna og nostrar við heimilið

Ásta býr ásamt Marinó kærasta sínum og syni þeirra, Benjamín, …
Ásta býr ásamt Marinó kærasta sínum og syni þeirra, Benjamín, á fallegu heimili í Bryggjuhverfinu. Þetta eru fyrstu jólin án fótboltans. mbl.is/Karítas

Ásta Eir Árna­dótt­ir lagði fót­bolta­skóna á hill­una á dög­un­um eft­ir að hafa landað Íslands­meist­ara­titli sem fyr­irliði Breiðabliks. Hingað til hef­ur líf henn­ar snú­ist um fót­bolta en í ár ætl­ar hún að njóta alls þess sem þessi árs­tími býður upp á. Ásta er fag­ur­keri fram
í fing­ur­góma og sýn­ir les­end­um hvernig hún legg­ur á borð þegar mikið ligg­ur við.

„Stóra breyt­ing­in er held ég bara öðru­vísi hvers­dags­leiki. Ég mun hafa meiri tíma heimavið, sem er kær­kom­inn, og bara al­menn gleði með fjöl­skyld­unni minni og vin­um. En jól­in breyt­ast svosem ekk­ert, eða það held ég ekki. Kannski bara aðeins meiri tími til að gera og græja en vana­lega,“ seg­ir Ásta aðspurð að því hvernig líf henn­ar verði eft­ir fót­bolta­fer­il­inn. Hún býr í Bryggju­hverf­inu með kær­asta sín­um, Marinó Þór Jak­obs­syni og einka­syn­in­um Benja­mín sem er fjög­urra ára.

Ertu mikið jóla­barn?

„Já, ég myndi segja það. Ég elska að kom­ast í jólagír­inn og byrja hægt og ró­lega að skreyta og halda svo í gaml­ar og nýj­ar hefðir tengd­ar jól­un­um.“

Hvað kem­ur þér í jóla­skap?

„Það er alls kon­ar. Ég byrja yf­ir­leitt að hlusta á nokkr­ar upp­á­hald­sjó­la­plöt­ur í lok nóv­em­ber. Þá kemst ég oft­ast í gír­inn,“ seg­ir hún.

Ásta leggur mikið upp úr einfaldleikanum og leggur fallega á …
Ásta legg­ur mikið upp úr ein­fald­leik­an­um og legg­ur fal­lega á borð. Hún bland­ar sam­an borðbúnaði frá IKEA, Akk­er og HAY. Morg­un­blaðið/​Karítas

Tromptopp­ar og jóla­trés­kaup

Þegar Ásta er spurð út í jól bernsk­unn­ar seg­ir hún að þau hafi alltaf verið gleðileg og skemmti­leg og góðar minn­ing­ar séu á færi­bandi.

„Ég á tvö systkini og við vor­um mikið úti í garði að búa til snjó­karla eða fara í snjó­stríð. Við fór­um oft inn í bíl­skúr í fót­bolta eða hand­bolta á meðan mamma og pabbi voru að græja jóla­mat­inn, sem voru oft­ar en ekki rjúp­ur og allt það besta með þeim,“ seg­ir hún. Ásta er alin upp við að baka tromptoppa með móður sinni og syst­ur.

„Svo fór öll fjöl­skyld­an sam­an í Garðheima að velja jóla­tré og svo skar ég út laufa­brauð með allri stór­fjöl­skyld­unni heima hjá ömmu og afa. Þetta eru svona minn­ing­ar sem standa upp úr.“

Dúkur og diskar eru úr IKEA, hnífapör frá Sabre Paris …
Dúk­ur og disk­ar eru úr IKEA, hnífa­pör frá Sa­bre Par­is sem fæst hjá Akk­er, kerta­stjak­arn­ir og kert­in frá HAY og IKEA. mbl.is/​Karítas

Jól í sól og hita

Ásta stundaði há­skóla­nám á Flórída og seg­ir að það hafi verið svo­lítið sér­stakt að upp­lifa aðventu í sól og hita.

„Ég kom alltaf heim um jól­in en náði alltaf að vera úti í byrj­un des­em­ber. Það var alltaf jafn sér­stakt að vera í hit­an­um þar sem jóla­ljós og jóla­skraut var út um allt. Ég mun upp­lifa það aft­ur í ár þar sem við fjöl­skyld­an ætl­um að skella okk­ur á heima­slóðir þessi jól­in.“

Hvernig eru jól­in eft­ir að þú varðst full­orðin og eignaðist kær­asta og barn?

„Bara dá­sam­leg! Við Marinó vor­um alltaf hvort í sínu lagi á jól­un­um þangað til við eignuðumst barn. Okk­ur fannst báðum frek­ar erfitt að fara frá fjöl­skyld­um okk­ar en núna skipt­um við þessu á milli frá ári til árs. Strák­ur­inn okk­ar er strax orðin mjög mikið jóla­barn og mér finnst gam­an að búa til nýj­ar hefðir fyr­ir okk­ur.“

Heimili Ástu er látlaust og fallegt.
Heim­ili Ástu er lát­laust og fal­legt. mbl.is/​Karítas

Ein­fald­ur stíll

Ásta er búin að leggja fal­lega á borð þegar ljós­mynd­ara Morg­un­blaðsins ber að garði. Heim­ilið er í skandína­vísk­um stíl og hönn­un­in eft­ir því. Hún seg­ist vera svona temmi­lega míníma­lísk. Það er ekki allt beige-litað.

„Ég kýs að hafa skreyt­ing­ar á borðinu frek­ar ein­fald­ar en fal­leg­ar. Vil hafa nóg af plássi fyr­ir mat­inn frek­ar en of mikið skraut. En kerti eru al­gjört lyk­il­atriði, er al­mennt mik­il ker­ta­kona og finnst mjög huggu­legt að hafa kerta­ljós á borðinu,“ seg­ir hún. Dúk­ur og disk­ar eru úr IKEA, hnífa­pör frá Sa­bre Par­is sem fæst hjá Akk­er, kerta­stjak­arn­ir og kert­in frá HAY og IKEA.

Áttu mikið jóla­skraut?

„Nei, myndi ekki segja það. Hef svona hægt og ró­lega sankað að mér jóla­skrauti síðustu ár. En ég á hins veg­ar tvær jóla­tré­s­mott­ur. Eina sem er alltof stór og ég keypti hana á alltof marga pen­inga til að getað notaða hana einn dag­inn í framtíðar­hús­inu mínu. Hún bíður betri tíma.“

Eruð þið Marinó sam­mála um það hvernig eigi að skreyta heim­ilið fyr­ir jól­in?

„Já, eða við höf­um svo sem aldrei lent í nein­um deil­um um það, sem er bara já­kvætt. En við erum með frek­ar svipaðan stíl al­mennt þannig að þetta er ekk­ert vanda­mál.“

Hvað dreym­ir þig um inn á heim­ilið?

„Eins og staðan er í dag þá lang­ar mig í HAY Mags Soft-sófa og lista­verk eft­ir Regínu Rour­ke.“

Ómiss­andi jóla­gjafalisti

Jóla­gjaf­ir eru hátt skrifaðar hjá Ástu en lít­ill fugl hvíslaði því að mér að þú gerðir sér­staka jóla­gjafal­ista. Segðu mér bet­ur frá þessu fyr­ir­komu­lagi og hvernig það virk­ar.

„Skemmti­legt að þú skul­ir spyrja! Þetta á nú bara við nokkra fjöl­skyldumeðlimi og sum­ir eru á móti þessu en þetta er í raun­inni bara stór­sniðugt. Við syst­ur og frænk­ur deil­um stund­um lista á milli okk­ar og hug­mynd­in á bak við það er að við treyst­um hver á aðra með að koma list­an­um áfram og gefa þar með tips til fleiri í fjöl­skyld­unni því all­ir fá þessa spurn­ingu: „Hvað vill syst­ir þín í jóla­gjöf“ eða „hvað vill kær­ast­an í jóla­gjöf?“

Hvað lang­ar þig í í jóla­gjöf?

„Mig lang­ar til dæm­is í jap­anska hnífa og góðan úti­vist­ar­jakka. List­inn er í vinnslu,“ seg­ir hún og hlær.

Hvenær byrj­ar þú að kaupa jóla­gjaf­ir?

„Ég seg­ist alltaf ætla að byrja fyrr og dreifa kostnaðinum en svo ger­ist það aldrei og ég er alltaf að græja all­ar gjaf­ir í des­em­ber. Ég er ekk­ert rosa­lega skipu­lögð.“

Ertu svona mann­eskja sem vilt drífa þetta af eða legg­urðu metnað í að velja hár­rétta gjöf fyr­ir þitt fólk?

„Ég legg metnað í þetta þótt ég sé stund­um á síðustu stundu að kaupa gjaf­irn­ar. Ég pæli al­veg lengi í því hvað ég ætla að gefa hverj­um.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda