Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis, hefur gert það gott á sínu sviði og hagnast vel á viðskiptum. Hann hefur verið óhræddur við að fara sínar leiðir og hefur það skilað árangri. Árið 2023 festi félag hans, FnFP ehf., kaup á einbýlishúsi við Laufásveg 71 sem teiknað var af Guðjóni Samúelssyni. Þegar þáttaröðin Vigdís var á leið í tökur kom upp óvænt atvik sem gerði það að verkum að skipta þurfti um tökustað. Þá voru góð ráð dýr.
Guðmundur Fertram og eiginkona hans, Fanney Kristín Hermannsdóttir, tóku tökuliðinu hinsvegar opnum örmum þegar leitað var til hans og lánuðu húsið við Laufásveg. Innréttingar hússins pössuðu ekki alveg inn í leikmyndina og gaf Guðmundur Fertram leyfi fyrir því að veggir yrðu brotnir niður, veggfóðraðir og málaðir í litum sem voru móðins í fortíðinni til þess að gera leikmyndina sem besta.
„Okkur hjónum fannast ánægulegt að geta lánað húsnæðið fyrir upptökurnar. Við berum mikla virðingu fyrir frú Vigdísi og arfleifð hennar,“ segir Guðmundur Fertram í samtali við við Smartland.
Leikmyndahönnuðurinn Heimir Sverrisson og hans teymi á heiðurinn af leikmynd þáttanna. Heimir sagði frá því í útvarpsviðtali á Rúv en nafngreindi ekki þennan góðhjartaða Guðmund Fertram sem lánaði húsið sitt.
Heimir hefur kallað fram ýmis ævintýri í gegnum tíðina á listræna sviðinu og gert fólk hrifið. Hann gerði til dæmis leikmyndina í Villibráð og eftir að myndin var frumsýnd rúntaði fólk um Vesturbæinn og Seltjarnarnes til að reyna að finna Villibráðarhúsið. Sú leit skilaði ekki árangri því húsið var ekki til í raun og veru. Heimir hannaði leikmyndina og lét byggja í skemmu þar sem bíómyndin var tekin upp.
Heimir býr með Brynhildi Guðjónsdóttur Borgarleikhússtjóra í fallegu húsi í Skerjafirði. Heimili þeirra er eins og leikmynd því hugsað er út í hvert einasta smáatriði en Heimir leiddi lesendur Smartlands í gegnum sinn heim þegar hann og Brynhildur voru gestir Heimilislífs.
Aftur að Vigdísi sem er íslensk leikin þáttaröð sem fjallar um líf og störf frú Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands. Elín Hall leikur Vigdísi unga og Nína Dögg Filippusdóttir leikur Vigdísi eldri. Björg Magnúsdóttir og Ágústa M. Ólafsdóttir skrifuðu handritið og er þáttaröðinni leikstýrt af Birni Hlyni Haraldssyni og Tinnu Hrafnsdóttur. Mikið er rætt um þættina á kaffistofum landsins því fólk er alsælt með að fá loksins eitthvað fyrir skattpeningana sína.