Ómar lögmaður selur leðursófa á Facebook

Ómar R. Valdimarsson lögmaður auglýsir leðursófa til sölu.
Ómar R. Valdimarsson lögmaður auglýsir leðursófa til sölu. Ljósmynd/Aðsend

Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson auglýsir nú U-laga sófa til sölu. Sófinn er úr Pinto-línunni sem fæst í Húsgagnahöllinni. Sófinn er úr sterku Kentucky bonded-leðri og er koníakslitaður. Ómar segir í auglýsingu á samfélagsmiðlinum Facebook að hann sameini endingargæði og þægindi. 

„Hann er með kaldpressuðum svampi og mjúku yfirlagi í púðum, sem tryggja framúrskarandi stuðning og langlífi. Hann kostar nýr í dag 337.492 kr., en ég sel hann á aðeins 199.000 kr.,“ segir Ómar í auglýsingunni. 

Hann telur upp nokkur einkenni sófans: 

  • U-laga hönnun með tungu hægra megin – fullkomið fyrir fjölskylduna.
  • Sterkir fætur úr svörtu járni, sem bæta bæði útlit og stöðugleika.
  • Þægileg sæti og lausir bakpúðar sem sitja tryggilega á sínum stað.
  • Stílhreint útlit sem passar inn í hvaða stofu sem er.

Ómar segir að sófinn sé vel með farinn og hafi fengið góða umhirðu. 

Sófinn er koníaksbrúnn á litinn og úr leðri.
Sófinn er koníaksbrúnn á litinn og úr leðri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda