Þetta eru ódýrustu íbúðirnar í Reykjavík akkúrat núna

Það geta falist góð tækifæri í að fjárfesta í lítilli …
Það geta falist góð tækifæri í að fjárfesta í lítilli eign sérstaklega ef um fyrstu kaup er að ræða. Samsett mynd/mbl.is

Smartland skoðaði fasteignir á höfuðborgarsvæðinu og útbjó lista yfir þær fimm ódýrustu, að undanskildu atvinnuhúsnæði sem breytt hefur verið í íbúðir.

Íbúðirnar eru á mismunandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu og eru ýmist tveggja herbergja eða stúdíó. Á fasteignavef mbl.is er mælt með þeim sem fyrstu kaup.

Stór og gróinn garður í kringum húsið við Skeggjagötu.
Stór og gróinn garður í kringum húsið við Skeggjagötu. Skjáskot/mbl.is

Skeggjagata 15

Íbúðin er staðsett við Skeggjagötu í hverfi 105 í Reykjavík. Um ræðir þrjátíu fermetra kjallaraíbúð í þriggja íbúða húsi. Líkt og segir á fasteignavef skiptist eignin í alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Geymslan telst ekki inn í uppgefna fermetra. 

Ásett verð er 37,9 milljónir. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Skeggjagata 15

Stutt er í alla helstu þjónustu frá íbúðinni í Hraunbæ.
Stutt er í alla helstu þjónustu frá íbúðinni í Hraunbæ. Skjáskot/mbl.is

Hraunbær 102

Íbúðin er laus við kaupsamning. Á fasteignavef mbl.is segir að íbúðin sé frábær fyrstu kaup. Þetta er stúdíóíbúð með sérinngangi og verönd. Stofa, eldhús og svefnaðstaða eru í opnu rými. Baðherbergi er með baðkari og dúk á gólfi. Íbúðin er skráð 44 fermetrar, með þvottarými en þurrkherbergi er í sameign. Góð staðsetning í nálægð við matvöruverslun, skóla, leikskóla og strætó.

Ásett verð er 39,9 milljónir

Sjá nánar fasteignavef mbl.is: Hraunbær 102

Íbúðin í Kríuhólum var tekin í gegn fyrir fimm árum …
Íbúðin í Kríuhólum var tekin í gegn fyrir fimm árum og m.a. skipt um eldhúsinnréttingu. Skjáskot/mbl.is

Kríuhólar 2

Falleg tveggja herbergja íbúð á 5. hæð, með lyftu. Íbúðin var tekin í gegn fyrir um fimm árum og þá var allt nýtt sett á baðherbergi, skipt um hurðir og gólfefni. Ný eldhúsinnrétting og tæki, þvottavél og uppþvottavél var komið fyrir í eldhúsi. Árið 2022 var skipt um alla ofna. Svalir eru yfirbyggðar og útsýnið fallegt. Stærð íbúðar er 44,6 fermetrar. 

Ásett verð er 41,5 milljónir

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Kríuhólar 2

Upprunaleg innrétting að hluta.
Upprunaleg innrétting að hluta. Skjáskot/mbl.is

Samtún 22

Eignin er sögð góð fyrstu kaup, vel skipulögð kjallaraíbúð. Forstofa og baðerbergi eru flísalögð. Harðparket er á gólfum í svefnherbergi og stofu. Innrétting í eldhúsi er upprunaleg að hluta. Íbúðin er 46 fermetrar. Þvottahúsið er sameiginlegt með efri hæð en gengið er inn í það úr forstofu. 

Stutt er í alla helstu þjónustu og eignin er í göngufæri við miðbæinn og opið svæði í Laugardalnum. 

Ásett verð er 42,9 milljónir.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Samtún 22

Á jarðhæð hússins við kirkjustétt eru þjónusturými t.d. bakarí, hárgreiðslustofa, …
Á jarðhæð hússins við kirkjustétt eru þjónusturými t.d. bakarí, hárgreiðslustofa, líkamsrækt o.fl. Skjáskot/mbl.is

Kirkjustétt 4

Stúdíóíbúð sem er 45,3 fermetrar í hverfi 113. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými sem telur stofu og eldhús. Geymsla er innan íbúðar auk sérgeymslu í sameign. Útgengt er á suðursvalir. 

Parket er á gólfum í íbúðinni en baðherbergi flísalagt. Falleg hvít innrétting er í eldhúsi.

Ásett verð er 43,8 milljónir. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Kirkjustétt 4

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda