Það gustar af Ingu Sæland félags-og húsnæðismálaráðherra og formanni Flokks fólksins. Hún hefur verið talsmaður þeirra sem minna mega sín í landinu og negldi sig inn í ríkisstjórn með slagorðinu; fæði, klæði og húsnæði.
Inga veit að það skiptir máli að eiga þak yfir höfuðið og þekkir það af eigin raun hvað það er glatað að vera á leigumarkaði. Síðustu ár hefur Inga fjárfest í fermetrum og á í dag tvær fasteignir sem eru samtals 328 fm að stærð.
Inga er ættuð frá Ólafsfirði og því er kannski ekki skrýtið að hún hafi fest kaup á einbýlishúsi í bæjarfélaginu. Samkvæmt fasteignamati ríkisins festi Inga kaup á húsinu 27. ágúst 2018 en afsalið á húsinu var ekki gefið út fyrr en tveimur árum seinna eða 23. nóvember 2020. Inga greiddi 12.000.000 kr. fyrir húsið en það keypti hún af Birki Inga Símonarsyni. Húsið er 180,9 fm að stærð og var það reist 1968. Það skartar stórum gluggum og byggt í þeim stíl sem var móðins á byggingarárinu.
Í dag er sonur Ingu og Óla Más Guðmundssonar, Guðmundur Ólason, með lögheimili í húsinu ásamt eiginkonu sinni, Andreu K. Lind Gunnarsdóttur athafnakonu sem var í 13. sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningum. Í húsinu býr líka sonur Andreu sem fæddur er 2016.
Árið 2021 festi Inga kaup á 148 fm íbúð við Maríubaug í Grafarholti í Reykjavík. Íbúðina keypti hún af Brynju leigufélagi. Um er að ræða íbúð á fyrstu hæð ásamt bílskúr. Fyrir íbúðina greiddi Inga 58.500.000 kr. og er þar með lögheimili ásamt eiginmanni sínum, fyrrnefndum Óla Má Guðmundssyni, en saman eiga þau fjögur börn sem eru fædd á árunum 1978-1987. Inga er ein skráð fyrir báðum fasteignunum þótt hjónin hafi verið lengi í samvistum.
Á dögunum sagði Smartland frá því að íbúð í Ingu Sæland-blokkinni við Maríubaug væri á sölu. Íbúðin er ennþá óseld ef einhver er í húsnæðisleit.