Jörundur selur íbúðina sem hann keypti 2007

Jörundur Ragnarsson selur íbúðina sem er á besta stað við …
Jörundur Ragnarsson selur íbúðina sem er á besta stað við barnvæna götu í Reykjavík. Samsett mynd

Jör­und­ur Ragn­ars­son leik­ari hef­ur sett íbúð sína við Brá­valla­götu í miðbæ Reykja­vík­ur á sölu. Íbúðin er þriggja her­bergja ris­íbúð í þríbýl­is­húsi. Jör­und­ur festi kaup á íbúðinni árið 2007. 

Íbúðin er 86 fm en gólf­flöt­ur­inn er meiri þar sem svefn­heberg­in, baðher­bergið og eld­húsið eru að hluta til und­ir súð.

Jör­und­ur fann ást­ina í örm­um Magda­lenu Björns­dótt­ur í heims­far­aldr­in­um árið 2021. Þau eignuðust son í maí í fyrra.

Íbúðin er sjarmer­andi og skipt­ist í for­stofu, borðstofu, stofu, tvö svefn­her­bergi eld­hús og baðher­bergi. Fal­legt viðarp­ar­ket er á öll­um gólf­flöt­um nema á baðher­berg­inu þar sem gólfið er flotað og lakkað. 

Það kem­ur fram í fast­eigna­aug­lýs­ing­unni að íbúðin hafi fengið gott viðhald síðustu ár. Tekið er fram að hverfið sé ein­stak­lega barn­vænt og gat­an ró­leg ein­stefnu­gata.

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Brá­valla­gata 24 

Opið er frá sjónvarpsstofunni og í borðstofuna.
Opið er frá sjón­varps­stof­unni og í borðstof­una. Sölu­mynd­ir.is
Blátt veggfóður er í borðstofunni.
Blátt vegg­fóður er í borðstof­unni. Sölu­mynd­ir.is
Íbúðin er þriggja herbergja risíbúð.
Íbúðin er þriggja her­bergja ris­íbúð. Sölu­mynd­ir.is
Eldrauður ísskápur stendur í eldhúsinu.
Eld­rauður ís­skáp­ur stend­ur í eld­hús­inu. Sölu­mynd­ir.is
Heillandi þakgluggi í eldhúsinu hleypir birtunni inn.
Heill­andi þak­gluggi í eld­hús­inu hleyp­ir birt­unni inn. Sölu­mynd­ir.is
Borðstofan er hlýleg.
Borðstof­an er hlý­leg. Sölu­mynd­ir.is
Rúmgott hjónaherbergi sem málað er í fjólubláum lit.
Rúm­gott hjóna­her­bergi sem málað er í fjólu­blá­um lit. Sölu­mynd­ir.is
Barnaherbergið er einnig rúmgott.
Barna­her­bergið er einnig rúm­gott. Sölu­mynd­ir.is
Í barnaherberginu er pláss fyrir tvö börn í koju og …
Í barna­her­berg­inu er pláss fyr­ir tvö börn í koju og nóg af gólfplássi fyr­ir leik. Sölu­mynd­ir.is
Gólfið á baðherberginu er flotað en flísarnar á veggjum í …
Gólfið á baðher­berg­inu er flotað en flís­arn­ar á veggj­um í ljós­rauðum lit. Sölu­mynd­ir.is
Húsið er heillandi við einstefnugötu.
Húsið er heill­andi við ein­stefnu­götu. Sölu­mynd­ir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda