Sturlað útsýni í Grafarvogi vekur athygli

Sérlega fallegur litur á eyjunni.
Sérlega fallegur litur á eyjunni. Ljósmynd/Eignamiðlun

Við Leiðhamra í Grafarvogi er að finna einstaka útsýniseign sem er á hæglátum og grónum stað í Hamrahverfinu í Grafarvogi. Einbýlishúsið var byggt árið 1992, er á einni hæð og telur alls 222,1 fm, þar af er tvöfaldur bílskúr sem er 46,5 fm.

Núverandi eigendur lögðust í umfangsmiklar breytingar og fengu með sér í lið Theresu Himmer og Krads arkitekta. Eldhúsið er hannað með nýtinguna í forgrunni og er vel staðsett í alrýminu.

Alrýmið er afar bjart og fallegt og státar af þakglugga sem gefur rýminu enn skemmtilegri blæ. Hátt er til lofts og eikarparket á gólfum í alrými og svefnherbergjum.

Úr alrýminu er stórbrotið útsýni út á Snæfellsnesið þar sem Snæfellsjökullinn trónir yst á nesinu, út á Viðey, Esjuna og Úlfarsfell. Alrýmið skiptist í eldhús, borðstofu, bókastofu og skrifstofurými og býður upp á sérstakan möguleika á uppröðun innanstokksmuna þar sem sköpunargleði getur leikið lausum hala. Bókaskápar og hillur eru innfelldar í veggi í stofunni sem gefur henni sérstaklega skemmtilega samblöndu notagildis og fagurfræði.

Í húsinu eru einnig þrjú svefnherbergi, rúmgott þvottahús og geymslurými og tvö baðherbergi. Útgengt er út á sólpall til vesturs úr hjónaherbergi, alrými og baðherbergi. Úr alrými er einnig útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa norður.

Eignin er í einu af elstu hverfunum í Grafarvogi og stutt er í alla helstu þjónustu, eins og skóla og leikskóla. Í nágrenninu eru frábærar göngu- og hjólaleiðir niður með sjó og inn í hverfið. Stutt er í skemmtilegt leiksvæði í Gufunesi, íþróttahús Fjölnis og Grafarvogslaug. 

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Leiðhamrar 24

Vaskur er á eyjunni og útdrög með lýsingu.
Vaskur er á eyjunni og útdrög með lýsingu. Ljósmynd/Eignamiðlun
Bókastofan er fallega uppsett og hillusamstæðan sérlega skemmtileg.
Bókastofan er fallega uppsett og hillusamstæðan sérlega skemmtileg. Ljósmynd/Eignamiðlun
Hátt til lofts. Þakgluggi í alrými gefur sérlega fallega birtu …
Hátt til lofts. Þakgluggi í alrými gefur sérlega fallega birtu inn á heimilið. Ljósmynd/Eignamiðlun
Svefnherbergin eru þrjú og öll mjög rúmgóð.
Svefnherbergin eru þrjú og öll mjög rúmgóð. Ljósmynd/Eignamiðlun
Forstofa er flísalögð, rúmgóð og björt.
Forstofa er flísalögð, rúmgóð og björt. Ljósmynd/Eignamiðlun
Úrsýnið eins og málverk.
Úrsýnið eins og málverk. Ljósmynd/Eignamiðlun
Útsýnið úr alrými nær m.a. til Snæfellsness og út á …
Útsýnið úr alrými nær m.a. til Snæfellsness og út á Viðey. Ljósmynd/Eignamiðlun
Stofan býður upp á ótal möguleika.
Stofan býður upp á ótal möguleika. Ljósmynd/Eignamiðlun
Hér er borðstofuborðið stillt upp mitt á milli stofu og …
Hér er borðstofuborðið stillt upp mitt á milli stofu og eldhúss. Ljósmynd/Eignamiðlun
Terrasóflísar eru á gólfi og á veggjum eru hvítar ítalskar …
Terrasóflísar eru á gólfi og á veggjum eru hvítar ítalskar mósaíkflísar með kverk- og hornaflísum, líkt og segir á vef Eignamiðlunar. Ljósmynd/Eignamiðlun
Umhverfið er sérlega fallegt og gróið. Pallurinn við húsið er …
Umhverfið er sérlega fallegt og gróið. Pallurinn við húsið er skjólgóður og snýr til vesturs. Ljósmynd/Eignamiðlun
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda