Steinbergur seldi húsið í Breiðholtinu

Steinbergur Finnbogason hefur selt einbýlishús sitt í Breiðholti.
Steinbergur Finnbogason hefur selt einbýlishús sitt í Breiðholti. Samsett mynd

Lögmaðurinn Steinbergur Finnbogason auglýsti einbýlishús sitt sölu á dögunum en hann átti 50% hlut í húsinu ásamt fyrrverandi kærustu sinni, Hrafnhildi Valdimarsdóttur. Um er að ræða sérlega eigulegt hönnunarsetur sem telur 209 fm að stærð. Húsið var reist 1971 og tóku Steinbergur og Hrafnhildur húsið í gegn en það var að mestu upprunalegt þegar þau festu kaup á því 2018. 

Nú er húsið selt. 

Nýir eigendur eru Vigdís Hallgrímsdóttir og Brynjúlfur Hallgrímsson. Þau greiddu 172.000.000 kr. fyrir húsið. 

Eftir að upp úr sambandi Steinbergs og Hrafnhildar slitnaði flutti hann í Kakókastala Helga Jean Classen og er nú skráður í sambúð með jógakennaranum Neda Honarvar. 

Smartland óskar Steinbergi og Neda til hamingju með ástina! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda