Hóteleigendur keyptu eitt fínasta parhúsið í Garðabæ

Parhús í Garðabæ hefur verið selt á 283.000.000 kr.
Parhús í Garðabæ hefur verið selt á 283.000.000 kr.

Við Mosprýði í Garðabæ er að finna ein­stak­lega fal­legt par­hús sem vakti at­hygli þegar það var aug­lýst til sölu. Um er að ræða 350,8 fm hús sem reist var 2008. Húsið er ein­stak­lega vandað og fal­legt og er á þrem­ur pöll­um. Óhætt er að segja að par­húsið sé eitt fín­asta par­húsið í Garðabæ. 

Bald­ur Ó Svavars­son hjá Inni og úti arki­tekt­um hannaði húsið. 

Björg Elva Jóns­dótt­ir inn­an­húss­arki­tekt teiknaði húsið að inn­an og voru inn­rétt­ing­ar sér­smíðaðar hjá Fag­us. Eld­hús­inn­rétt­ing­in í hús­inu er frá danska fram­leiðand­an­um Multi­Form. Gólfsíðir glugg­ar prýða húsið og er að finna mörg smá­atriði í hús­inu sem eru eft­ir­sókn­ar­verð. Efn­is­val í hurðum og inn­rétt­ing­um er liggj­andi Eik­ar­spón og ná all­ar inni­h­urðir upp í loft svo dæmi sé tekið. 

Húsið er glæsi­legt að utan en það er málað í litn­um Prýði sem er frá Slipp­fé­lag­inu. 

Nú hef­ur húsið verið selt. Hjón­in Vil­hjálm­ur Sig­urðsson og Guðrún Benný Svans­dótt­ir eig­end­ur Hót­el Laxá eru kaup­end­ur húss­ins en þau keyptu það af Har­aldi Árna­syni. Þau greiddu 283.000.000 kr. fyr­ir húsið. 

Smart­land ósk­ar hjón­un­um til ham­ingju með glæsieign­ina! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda