Pretty­boitjok­ko selur 69,9 milljóna blokkaríbúð

Patrik Snær Atlason hefur sett íbúðina sína á sölu.
Patrik Snær Atlason hefur sett íbúðina sína á sölu. Ljósmynd/Helgi Ómars

Tón­list­armaður­inn Pat­rik Snær Atla­son, eða Pretty­boitjok­ko eins og hann er kallaður, hef­ur sett 87 fm íbúð sína í Hafnar­f­irði á sölu. Um er að ræða blokka­r­í­búð með sér­inn­gangi sem byggð var 2002. 

Pat­rik var gest­ur Heim­il­is­lífs Mörtu Maríu 2023 og þar sagði hann frá hönn­un íbúðar­inn­ar. Skipt var um eld­hús 2018 og þá var baðher­bergi líka tekið í gegn. Móðir Pat­riks, Ing­unn Helga­dótt­ir, var syni sín­um inn­an hand­ar þegar íbúðin var hönnuð enda ann­áluð smekk­kona. 

Í íbúðinni eru tvö svefn­her­bergi, en Pat­rik not­ar annað þeirra sem fata­her­bergi. Það er líka annað smá­atriði sem er áhuga­vert og það er faldi fata­skáp­ur­inn í for­stof­unni sem rúm­ar nokkra metra af fata­slám.

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Svölu­ás 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda