Sturluð efri sérhæð við Flókagötu

Endalaus birta einkennir íbúðina.
Endalaus birta einkennir íbúðina. Samsett mynd

Við Flóka­götu í Reykja­vík er heill­andi og stíl­hrein efri sér­hæð til sölu. Íbúðin er staðsett í eft­ir­sókn­ar­verðu og rót­grónu hverfi í ná­grenni við Kjar­valsstaði og Ísaks­skóla. Eign­in er 149,7 fm og þar af er íbúðin 133,7 fm, geymsla á jarðhæð er 5,6 fm og rúm­gott sérþvotta­hús eign­ar­inn­ar er 10,4 fm. Sér­bíla­stæði er hægra meg­in við húsið sem rúm­ar tvo bíla.

Gegn­heilt eikarp­ar­ket, sem var end­urslípað og olíu­borið 2021, er á allri íbúðinni. Al­rýmið er stórt og bjart með dá­sam­leg­um boga­dregn­um glugg­um sem gefa íbúðinni ein­stak­an svip. Sval­ir fylgja íbúðinni sem snúa í suður og út í gró­inn og skjól­sæl­an garð. Þrjú svefn­her­bergi eru í íbúðinni og eitt baðher­bergi.

Borðstofa er samliggj­andi með stofu sem býr til góða stemn­ingu. Í eld­hús­inu er hvít Multi­form-eld­hús­inn­rétt­ing með eyju sem var end­ursprautuð árið 2023. Smeg-gaselda­vél og granít­borðplöt­ur eru í eld­húsi. Hjóna­her­bergið er mjög rúm­gott með miklu skápaplássi. Á baðher­bergi eru flís­ar á veggj­um, baðkar og sturta. Blönd­un­ar­tæk­in eru frá Vola.

Á gang­in­um eru sér­smíðaðar eik­ar­hill­ur ásamt rúm­góðum fata­skáp.

Sjá á fast­eigna­vef mbl.is: Flóka­gata 56

Íbúðin er stílhrein og bogadregnu gluggarnir í stofunni gera mikið.
Íbúðin er stíl­hrein og boga­dregnu glugg­arn­ir í stof­unni gera mikið.
Útgengt er á suðursvalir frá borðstofu og eldhúsi.
Útgengt er á suðursval­ir frá borðstofu og eld­húsi.
Eldhúsinnréttingin er með granítborðplötum og SMEG-eldavél.
Eld­hús­inn­rétt­ing­in er með granít­borðplöt­um og SMEG-elda­vél.
Sérsmíðaðar hillur á ganginum.
Sér­smíðaðar hill­ur á gang­in­um.
Stofan er björt og falleg.
Stof­an er björt og fal­leg.
Baðkar er í íbúðinni sem heillar marga.
Baðkar er í íbúðinni sem heill­ar marga.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi.
Hjóna­her­bergið er rúm­gott með góðu skápaplássi.
Fólki ætti að líða vel í þessari birtu.
Fólki ætti að líða vel í þess­ari birtu.
Svalirnar snúa í suður og út í skjólsælan garð.
Sval­irn­ar snúa í suður og út í skjól­sæl­an garð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda