Við Reynimel 37 er að finna 216 fm parhús sem reist var 1939. Húsið hefur verið endurnýjað mikið síðan það var reist, en í eldhúsinu er hvítar innréttingar frá HTH og fallegar munstraðar flísar sem ná mislangt upp á veggi. Gashelluborð er í eldhúsinu. Eldhúsið er samliggjandi borðstofu og stofu og er útgengi út í garð úr þessu rými.
Húsið er á tveimur hæðum með kjallara en þar er hægt að hafa aukaíbúð. Húsin á þessum stað í Vesturbænum eru eftirsótt og því á þetta hús ekki eftir að stoppa lengi við á sölu.
Hægt er að skoða það nánar á fasteignavef mbl.is: Reynimelur 37