Húsin í Akrahverfinu í Garðabæ eru eftirsótt enda þykir hverfið það fínasta í Garðabæ eða á pari við Arnarnesið. Húsin í hverfinu ganga kaupum og sölum og hafa fjölmörg hús í hverfinu verið auglýst til sölu síðasta árið. Þau eru þó ekki öll auglýst til sölu því eitt af húsunum í hverfinu var selt í skúffunni eins og sagt er. Það var ekki auglýst og gekk fasteignasali frá kaupunum.
Um er að ræða 314,2 fm einbýlishús við Stórakur sem reist var 2013. Húsið var í eigu Marínar Ólafsdóttur en hún gerði makaskiptasamning við Gunnar Inga Jóhannsson og Elfu Arnardóttur. Marín tók raðhús við Breiðakur upp í einbýlishúsið við Stórakur.
Kaupendur greiddu 310.000.000 kr. fyrir einbýlishúsið við Stórakur. Kaupin fóru fram 4. október 2024 og var húsið afhent 17. desember 2024. Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali gekk frá kaupunum.
Smartland óskar Gunnari Inga og Elfu til hamingju með húsið!