Útsýnishús á besta stað á Seltjarnarnesi

Við Sæ­braut 7 á Seltjarn­ar­nesi er að finna 303 fm ein­býl­is­hús sem reist var 1968. Húsið er teiknað af Guðmundi Kr. Krist­ins­syni arki­tekt. Húsið stend­ur á ein­stök­um stað al­veg við sjó­inn og hef­ur að geyma óhindrað út­sýni út á haf. 

Húsið er á tveim­ur hæðum. 

„Komið er inn í and­dyri með flís­um á gólfi. Góður fata­skáp­ur er í and­dyri. Inn af and­dyri er gestasnyrt­ing. Úr and­dyr­inu er svo gengið inní stofu. Borðstof­an, stof­an og sjón­varps­stof­an er eitt rými með par­keti á gólfi. Renni­h­urð er úr stof­unni útá ver­önd. Við borðstof­una er rúm­gott eld­hús. Flís­ar eru á gólfi í eld­hús og steinn á borðum. Eld­hús er snyrti­legt og var end­ur­nýjað fyr­ir nokkr­um árum.  Svefn­her­berg­is­gang­ur er með par­keti á gólfi. Góð renni­h­urð er út á ver­önd frá gang­in­um. Svefn­her­berg­in eru með par­keti á gólfi. Baðher­bergi er með flís­um á gólfi og veggj­um. Góð inn­rétt­ing er á baðher­bergi og sturta. Frá svefn­her­berg­is­gangi er gengið niður á neðri hæðina. Par­ket er á flest­um rým­um á neðri hæðinni. Flís­ar á geymsl­um og þvotta­húsi. Mögu­leiki er að gera auka íbúð á neðri hæðinni. Garður­inn við húsið er snyrti­leg­ur og í góðri rækt. Flísa­lögð ver­önd er við húsið og lít­il sund­laug. Köld geymsla er und­ir ver­önd­inni. Bíl­skúr er  með raf­magni og hita,“ seg­ir á fast­eigna­vef mbl.is. 

Eig­end­ur húss­ins eru Jón­ína Björg Jón­as­dótt­ir og Steinn Jóns­son. 

Hægt er að skoða húsið nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Sæ­braut 7 og Sæ­braut 7

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda