Gunnhildur Arna keypti útsýnishús í Kópavogi

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir keypti einbýlishús við Selbrekku í Kópavogi.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir keypti einbýlishús við Selbrekku í Kópavogi. Samsett mynd

Gunn­hild­ur Arna Gunn­ars­dótt­ir, fjöl­miðlakona og rit­höf­und­ur, hef­ur fest kaup á fal­legu húsi við Sel­brekku í Kópa­vogi. Um er að ræða 222,6 fm hús sem reist var 1971. Húsið er á tveim­ur hæðum og stend­ur á góðum stað í brekk­um Kópa­vogs þar sem út­sýni er yfir til Reykja­vík­ur. Og reynd­ar líka yfir Esj­una og all­an fjalla­hring­inn. 

Kaup­in fóru fram 16. maí og var húsið af­hent á dög­un­um. Gunn­hild­ur Arna greiddi 144.000.000 kr. fyr­ir húsið. Hún bjó áður við Fögru­brekku í Kópa­vogi ásamt fyrr­ver­andi eig­in­manni sín­um, Birni Friðriki Brynj­ólfs­syni upp­lýs­inga- og sam­skipta­stjóra umboðsmanns Alþing­is. Þau fóru hvort í sína átt­ina fyr­ir stuttu. 

Gunn­hild­ur Arna hef­ur starfað við fjöl­miðla síðan 2004 og hef­ur notið vel­gengni á því sviði. Hún hef­ur stýrt frétta­stof­um og var um tíma rit­stjóri 24 Stunda. Hún var um tíma upp­lýs­inga­full­trúi Sím­ans svo ein­hver af fyrri störf­um séu nefnd. Árið 2020 kom út ævi­saga  Ein­ars Þórs Jóns­son­ar þroskaþjálfa og fram­kvæmda­stjóra HIV Ísland og sá Gunn­hild­ur Arna um að skrifa sög­una. 

Smart­land ósk­ar Gunn­hildi Örnu til ham­ingju með húsið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda