Dýpi var stofnað af G. Sigríði Ágústsdóttur, kallaðri Sirrý, og Árnýju Þórarinsdóttur arkitekt. Sirrý hafði gengið með hugmyndina um að nýta þörungana í yfir tíu ár og reynt að koma henni á framfæri við aðra, en ákvað svo að láta slag standa og vaða í þetta sjálf.
„En svo kom að þessum tímapunkti að ég hugsaði: Hún er alltaf í maganum, þessi hugmynd. Ég er alltaf að horfa á þessa kalkþörunga, ég er með þá í vasanum og ég er með þá í hillunni,“ segir hún.
„Ég ákvað að hringja í konu, Árnýju arkitekt, til að vita hvort hún vildi fara með mér í þetta verkefni. Úr varð að við stofnuðum Dýpi. Það er rosalega skemmtilegt að hafa arkitekt með sér með alla þá kunnáttu og þekkingu sem hún hefur.“
Sirrý er alin upp í Arnarfirði og þekkir svæðið vel. „Það stendur hjarta mínu mjög nærri. Ég er mikið þarna og ég kalla þetta heimili mitt. Ég á enn mínar sterku djúpu rætur þar, móðir mín og fólkið mitt er þar þó að ég hafi mestmegnis búið í Reykjavík,“ segir hún.
Hvað er þetta með kalkþörunginn?
„Kalkþörungurinn gegnir rosalega mikilvægu hlutverki. Hann hreinsar sjóinn og spornar við súrnun sjávar en er mjög hægvaxandi. Hann vex á hundruðum ára. Það þarf hins vegar að grisja hluta af þessum kalkþörungum því að þeir fara með tímanum að kæfa þá sem lifandi eru,“ segir Sirrý.
Kalkþörungur er hreinn þörungur sem fólk tekur inn sem fæðubótarefni, hann er notaður í snyrtivörur en býr yfir þeim ótrúlegu eiginlegum að henta rosalega vel í málningu, segir Sirrý. Það verður til mikil þéttni og efnahvörf sem mynda sterka og lífræna málningu.
„Á milljónum ára hafa þeir hrannast upp og eru um 120 milljón tonn sem liggja í Arnarfirði. Það þarf að grisja um tvær og hálfa milljón tonna.“
Kalkþörungur er basískur og með hátt pH-gildi. „Sem verður þess valdandi að engin baktería eða mygla lifir í honum. Það verður til mikil öndun. Málningin inniheldur ekki plast eða neitt, það eru engar nanóplastflögur í þessari málningu og hún býr til hreint andrúmsloft,“ segir hún.
„Við erum sem sagt að reyna að búa til málningu sem hjálpar bæði umhverfinu og náttúrunni. Málningu sem er góð fyrir jörðina og okkur sem notum hana og bætir lífsgæði okkar.“
Geturðu sagt mér frá málningunni?
„Við eigum vöru núna sem er kalkmálning og kallast „lime paint“ í Evrópu. Við eigum okkar eigin litapallettu sem við tengjum við Arnarfjörð þar sem kalkþörungurinn okkar er tíndur. Við erum mest að vinna með jarðlitina sem liggja í kringum sjóinn og í sjónum. Við vinnum með það hvernig þörungurinn er á litinn, hvort hann blómstri eða sé orðinn 16 milljón ára gamall,“ útskýrir Sirrý.
Litir málningarinnar heita nöfnum tengdum hafinu og vísa í náttúruna, eins og Fjörusteinn, Fjara, Sandur, Brimskúmur, Hafblik, Flóð og Þari.
„Það er hægt að fá málninguna bæði þannig að hún sé fullþekjandi eða ekki alveg fullþekjandi eða með grófum kalkkornum í. Það myndar öðruvísi áferð á veggina og verður smá eins og míkrósteypa eða eitthvað svoleiðis. Þetta býr til skemmtilega skugga og áferð sem við erum mjög hrifnar af og okkur finnst gaman að sýna hana.“
Hún segir vöruna einstaka og gefa öðruvísi dýpt en venjuleg málning.
„Þú ert eiginlega alltaf með einstaka vöru. Það fer eftir því hvernig þú velur þér pensla og grófleikanum á kalkinu. Það verður til organískt samspil hjá þér á málningunni sem mun kannski ekki verða eins á næsta vegg. Svo elskar málningin mismunandi birtu og maður getur leikið sér með það hvernig skugginn fellur á og hvernig grófu kornin falla.“
Þær hafa undanfarið verið í samstarfi við málningarverslunina Sérefni þar sem málningin verður til sölu.
„Við erum aðeins að stækka eignarsamstarfið og það hefur verið ómetanlegur stuðningur að vera með Sérefnum í þessari vöruþróun. Málningin er að vissu leyti tilbúin en stefnan er að vera með vörulínu tilbúna árið 2026 og allt sem því fylgir, umbúðir og allt svoleiðis,“ segir hún.
„Við erum að einblína á arkitekta og á þau verkefni sem eru í stærra lagi því þetta er auðvitað takmörkuð auðlind. Það eru aðeins leyfi til næstu 40 ára til að tína þennan kalkþörung og í takmörkuðu magni. Við erum að reyna að búa til svolítið sérstaka vöru sem er ekki endalaus uppspretta af. Við viljum frekar að hún veljist inn í þau verkefni sem er búið að hugsa allan hringinn. Fólk velur málninguna út frá umhverfissjónarmiðum, sjálfbærni og bláa hagkerfinu. Hún fer auðvitað inn á öll falleg heimili og passar alls staðar.“
Hvernig er með litina þegar svona náttúruleg vara á í hlut, náið þið að halda þeim eins?
„Við létum gera þá í samstarfi við litaframleiðanda, þetta eru digitalkóðaðir litir sem eru gerðir í litavél svo að þeir verða alltaf eins. Það er svo í raun og veru hægt að kaupa grunnmálninguna okkar ólitaða og velja lit sem er inni í litakerfi fyrir steinefnamálningu.“
Þær hafa þróað litina með duftlitum frá belgískum framleiðanda. Litirnir eru náttúrulegir, eru unnir úr plöntum, steinum eða skordýrum.
„Svo að litirnir eru líka lífrænir og engin skaðleg efni þar heldur.“
Hvernig er að mála með málningunni, er það aðeins fyrir fagmenn?
„Nei, þetta er fyrir þá sem geta haldið á pensli. Það verður til eitthvert samspil sem er svo skemmtilegt. Það er skemmtilegt að mála með henni, hún er vel þekjandi og þægileg í vinnslu. Og eins og einkennir góða steinefnamálningu þá er auðvelt að þrífa hana áður en hún þornar, af penslunum, af fötunum og ef eitthvað fer á gólfið. En um leið og hún þornar þá búa þessi virku efnasambönd til málningu sem þolir álag.“
Margt hefur gerst á þessu eina ári síðan fyrirtækið var stofnað og segir Sirrý að helsta áskorunin sé tímaskortur.
„Við höfum fengið betri viðbrögð en við vorum tilbúnar í. Við ætluðum í raun að gefa okkur meiri tíma en það er allt í lagi, við höfum bara hlaupið aðeins hraðar, sem er skemmtilegt. Fólk hefur langað að fá málninguna strax. Ég hélt að við myndum hafa meiri tíma í að fínísera en við tökum samt þann tíma. Við erum að vanda okkur, ætlum að gera þetta vel því að við höfum mikla trú á þessari vöru. Við höfum séð hversu fallega hún kemur út og hversu vel hún virkar.“
Dýpi hefur vakið athygli utan landsteinanna og hafa erlend hönnunartímarit heillast af vörunni, eins og Bo Bedre og Dezeen. Þær finna fyrir miklum meðbyr.
„Ég held að ég hafi sjaldan farið jafn mikið hjá mér og þegar ég lenti á spjalli við Erik Rimmer, ritstjóra Bo Bedre. Hann var svo hvetjandi og sagði að þarna væri kona með metnaðarfull plön sem hann væri spenntur að fylgjast með. Honum fannst þetta ein besta hugmynd sem hann hafði heyrt síðan Prada kom á markað, mér fannst það svolítið stórt,“ segir hún og hlær.
Umfjöllun í stórum fjölmiðlum opnar margar dyr, að mati Sirrýjar, og þannig sé auðveldara að fá fagfólk til að kynna sér vöruna.
„Við erum mjög spenntar og sjáum mörg tækifæri. Draumurinn er að við getum búið til störf á Bíldudal, þar sem varan er. Við viljum að þessi fallegi þörungur, sem hefur búið í sátt og samlyndi við náttúruna og fegurðina í Arnarfirði, gefi eitthvað af sér inn á staðinn. Að hann verði ekki bara grafinn upp og fluttur í burtu heldur verði eftir raunveruleg verðmæti í þorpinu og byggðinni.“
Heldurðu að þetta gæti orðið stærra en þú hélst í upphafi?
„Já, ég held miklu stærra. Eins og svo oft áður vissi ég ekki út í hvað ég var að fara. En ég segi að maður eigi alltaf að fylgja hjartanu. Ég hafði ekki verið nógu dugleg að hlusta á það en þegar eitthvað hefur verið að banka í yfir tíu ár þá þarf maður að opna og sjá hvert það leiðir mann. Það fer eins og það fer en verður alltaf reynsla og lærdómur í lífsins skóla.“