Egill Heiðar og Kittý keyptu einbýli í Garðabæ

Egill Heiðar Anton Pálsson og Kittý Johansen hafa fest kaup …
Egill Heiðar Anton Pálsson og Kittý Johansen hafa fest kaup á einbýli í Garðabæ. Samsett mynd

Eg­ill Heiðar Ant­on Páls­son nýráðinn Borg­ar­leik­hús­stjóri og Kittý Johan­sen veit­inga­húsa­eig­andi hafa fest kaup á ein­býl­is­húsi í Garðabæ. Hann tók við starf­inu á dög­un­um af Bryn­hildi Guðjóns­dótt­ur leik­konu og leik­stjóra. Hann hafði búið lengi í Nor­egi, þar sem hann var leik­hús­stjóri, áður en hann flutti til Íslands. 

Um er að ræða 256 fm ein­býli við Mel­hæð í Garðabæ.

Húsið var reist 1992 og býður upp á marga mögu­leika.

Eitt af því sem er at­hygl­is­vert við húsið er að á efri hæðinni er lít­ill pall­ur, eða svið, þar sem hægt er að láta ljós sitt skína, eða leika list­ir sín­ar. Það er því ekki skrýtið að leik­hús­stjór­inn hafi fallið fyr­ir þess­um óvenju­lega sviði sem vís­ar inn í stof­una. 

Húsið við Mel­hæð er á tveim­ur hæðum og á pöll­um og hef­ur að geyma mörg fal­leg smá­atriði sem eru eft­ir­sókn­ar­verð á heim­il­um. Þar eru til dæm­is fal­leg­ir glugg­ar en í stof­unni er líka hátt til lofts. Í kring­um húsið er svo mjög gró­inn og fal­leg­ur garður. 

Parið greiddi 166.000.000 kr. fyr­ir húsið. 

Smart­land ósk­ar Agli og Kittý til ham­ingju með húsið! 

Húsið er við Melhæð í Garðabæ.
Húsið er við Mel­hæð í Garðabæ.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda