Fólk sem elskar Kaffibarinn mun fagna

Fuglahúsið er fallegt og fer vel úti í garði.
Fuglahúsið er fallegt og fer vel úti í garði. Ljósmynd/Ingibjörg Torfadóttir

Hjalti Karls­son hönnuður hjá Karl­sonwil­ker í New York hef­ur sópað að sér verðlaun­um í gegn­um tíðina. Nú hef­ur hann hannað enn eina snilld­ina sem er fugla­hús sem er eins og Kaffi­bar­inn. Verk­efnið vann hann í sam­starfi við hús­gagna­versl­un­ina Epal sem er 50 ára í ár. 

Kaffi­bar­inn fugla­hús hef­ur að geyma flösku­opn­ara og hent­ar því bæði inn­an­húss og ut­an­húss. 

Fugla­húsið er eft­ir­lík­ing af ein­um elsta bar Reykja­vík­ur sem hef­ur þjónað þyrstu fólki frá ár­inu 1993. Fasta­gest­ir staðar­ins eru lík­lega flest­ir hætt­ir að geta vakað fram á næt­ur og djammað eins og eng­inn sé morg­undag­ur­inn. Því ætti Kaffi­bars-fugla­hús að geta glatt þá sem hafa öðrum hnöpp­um að hneppa. Með því að horfa á fugla­hús Kaffi­bars­ins má kalla fram góðar djamm-minn­ing­ar þegar reykja mátti inni og ým­is­legt fleira sem ekki verður rifjað upp hér. 

Hægt er að opna flöskur með flöskuopnara sem er á …
Hægt er að opna flösk­ur með flösku­opn­ara sem er á hús­inu. Ljós­mynd/​Ingi­björg Torfa­dótt­ir
Kaffibarinn fuglahús fæst á epal.is og kostar 9.999 krónur.
Kaffi­bar­inn fugla­hús fæst á epal.is og kost­ar 9.999 krón­ur. Ljós­mynd/​Ingi­björg Torfa­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda