Anna Margrét og Árni Harðarson selja höll við Þingvallavatn

Anna Mar­grét Jóns­dótt­ir, fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing, flug­freyja og ferðamála­fræðing­ur, og Árni Harðar­son, aðstoðarfor­stjóri Al­vo­gen, hafa sett sum­ar­bú­stað sinn við Þing­valla­vatn á sölu. Það er kannski hæpið að kalla þetta sum­ar­bú­stað því um er að ræða glæsi­legt heils­árs­hús sem búið er að end­ur­nýja og betr­um­bæta. Eða svo­kallaða höll. 

Um er að ræða 219 fm hús sem reist var 1941. Upp­runa­lega húsið var hannað af Guðmundi Kr. Guðmunds­syni arki­tekt. Árið 1989 var byggt sér­stakt baðhús á lóðinni sem stend­ur enn en síðan þá hef­ur verið bætt við gesta­húsi og svo er líka báta­skýli á lóðinni. Stein­unn Eik arki­tekt hannaði ver­önd­ina sem prýðir garðinn en hún teng­ir sam­an hús­in á lóðinni.

Í aðal­hús­inu er ný­leg inn­rétt­ing frá danska hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Vipp. Inn­rétt­ing­arn­ar eru úr súkkulaðibrúnni eik og með kampa­vínslituðum marm­ara á eyj­unni. Upp­haf­lega var Vipp fyr­ir­tæki sem fram­leiddi stál­heiðarleg­ar rusla­tunn­ur en síðasta ára­tug­inn hef­ur fyr­ir­tækið vaxið í átt að nú­tíma­fólki sem vill hafa það gott. Líkt og Anna Mar­grét og Árni. 

Fast­eigna­mat þess­ar­ar hall­ar við Þing­valla­vatn er 60.750.000 kr. og er óskað eft­ir til­boði í eign­ina. 

Sjá nán­ar á fast­eigna­vef mbl.is: Heiðarbær 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda