Garðar og Sandra keyptu hús á Selfossi

Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir eru orðin hjón.
Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir eru orðin hjón. Skjáskot/Instagram

Fót­boltamaður­inn Garðar Berg­mann Gunn­laugs­son og Fann­ey Sandra Al­berts­dótt­ir, förðun­ar­fræðing­ur og einkaþjálf­ari, hafa fest kaup á par­húsi. Húsið er við Birki­hóla og er á Sel­fossi. Um er að ræða 178,1 fm fast­eign sem reist var 2006. 

Parið hnaut um hvort annað árið 2021 og ári síðar bað hann henn­ar á róm­an­tísk­asta stað ver­ald­ar, við sjálf­an Eif­felt­urn­inn í Par­ís. Ári síðar gengu þau í hjóna­band hjá sýslu­manni. Hjón­in eiga tvö börn sam­an en fyr­ir átti hann fjög­ur börn. Garðar varð fræg­ur þegar hann og Ásdís Rán Gunn­ars­dótt­ir ís­drottn­ing og for­setafram­bjóðandi voru gift en þau fóru hvort í sína átt­ina 2012.

Hér má sjá hið föngulega parhús sem hjónin hafa fest …
Hér má sjá hið föngu­lega par­hús sem hjón­in hafa fest kaup á.

Nema land á Sel­fossi

Nú ligg­ur leið þeirra á Sel­foss þar sem þau hafa fest kaup á par­húsi. Húsið er á einni hæð með ágæt­um garði. Eld­hús og stofa tengj­ast og má finna hvíta sprautulakkaða inn­rétt­ingu í eld­hús­inu. Þar er líka eyja sem ramm­ar inn eld­húsið en úr þessu rými er út­gengi út í garð. 

Garðar og Fann­ey greiddu 99.300.000 kr. fyr­ir húsið sem þau fá af­hent 1. júlí í sum­ar. 

Smart­land ósk­ar hjón­un­um til ham­ingju með húsið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda