Sigmar fluttur út úr húsinu

Sigmar Vilhjálmsson er fluttur úr úr raðhúsinu í Mosfellsbæ.
Sigmar Vilhjálmsson er fluttur úr úr raðhúsinu í Mosfellsbæ. mbl.is/Hallur

Fast­eigna­kaup Sig­mars Vil­hjálms­son­ar at­hafna­manns hafa verið fyr­ir­ferðamik­il síðustu ár. Hægt er að segja að þetta hafi allt haf­ist í kór­ónu­veirunni en eft­ir að hafa lent í sótt­kví í blokka­r­í­búð varð hann að flytja. Þá hnaut hann um fal­legt raðhús í Mos­fells­bæ sem hann gerði upp eft­ir kúnst­ar­inn­ar regl­um. 

Aug­lýsti húsið til sölu 

Fyr­ir tveim­ur árum setti Sig­mar húsið á sölu til þess að geta gert hreint fyr­ir sín­um dyr­um en skuld­ir höfðu safn­ast upp á meðan kór­ónu­veir­an geisaði. 

„Staða fyr­ir­tæk­is­ins hef­ur verið erfið i Covid og eft­ir. Frá­bær­ir birgjar hafa staðið með okk­ur i þeirri bar­áttu enda feng­um við enga rík­is­styrki, ekki krónu. Síðan kem­ur að því að greiða þær skuld­ir til baka. Sum­ir velja það að skipta um kenni­töl­ur. Aðrir velja það að standa við sín­ar skuld­bind­ing­ar. Sala mín á hús­inu er hluti af því að standa við mín­ar skuld­bind­ing­ar. Ég seldi húsið. Hluti sölu­and­virðis­ins notaði ég til að gera upp skuld­ir við kröfu­hafa og létta með því greiðslu­byrði fé­lags­ins á covid-skuld­um fé­lags­ins,“ sagði Sig­mar í sam­tali við Smart­land fyr­ir tveim­ur árum. 

Þá hafði Alma leigu­fé­lag keypt húsið af Sig­mari en gert við hann leigu­samn­ing um að hann mætti búa í hús­inu í tvö ár. Planið hjá Sig­mari var að kaupa húsið aft­ur að þeim tíma liðnum. Það varð ekki raun­in og er hann flutt­ur úr hús­inu. 

Í vor greindi Smart­land frá því að Sig­mar væri í til­tekt og aug­lýsti ný ljós til sölu á Face­book. 

Smart­land ósk­ar Sig­mari góðs geng­is! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda