Petrea keypti 290 milljóna parhús

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir keypti parhús á 290.000.000 kr.
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir keypti parhús á 290.000.000 kr. Samsett mynd

Petrea Ingi­leif Guðmunds­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­stjóri Tals og vara­formaður í stjórn­ar Sýn­ar, hef­ur fest kaup á glæsi­legu par­húsi sem er staðsett í Akra­hverf­inu í Garðabæ. Um er að ræða 276,4 fm raðhús sem reist var 2017. 

Húsið er á tveim­ur hæðum og býr yfir ýms­um töfr­andi atriðum. Í stof­unni er til dæm­is sex metra loft­hæð sem er sjald­gæf í par­hús­um á Íslandi. Þegar húsið var aug­lýst til sölu 2021 kom fram að það væru HTH-inn­rétt­ing­ar í eld­hús­inu og á baðher­bergj­um og var húsið selt á 175.000.000 kr.

Petrea greiddi 290.000.000 kr. fyr­ir húsið sem var sett upp í ein­býl­is­hús við Góðakur sem var í henn­ar eigu. Krist­inn Páll Guðmunds­son og Telma Björk Fjalars­dótt­ir, kaup­end­ur Góðak­urs, settu par­húsið við Byggakur 22 upp í ein­býlið sem selt var á 380.000.000 kr. Má segja að þau hafi ávaxtað pund sitt vel en hækk­un­in nem­ur 115.000.000 kr. á fjór­um árum. 

Smar­land ósk­ar Petr­eu til ham­ingju með húsið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda