Heimatilbúnar þjáningar

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is.
Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is. Ljósmynd/Kári Sverriss

Blíðviðrið síðustu vik­ur hef­ur lík­lega ekki farið fram­hjá nein­um. Það hef­ur ekki bara haft já­kvæð áhrif á lund lands­manna held­ur hef­ur allt vaxið og dafnað, tún grænkað og blóm blómstrað. Garðeig­end­ur hafa ýms­um skyld­um að gegna sem ekki er hægt að hundsa.

Á mínu heim­ili þarf að bera á glugga, ver­önd og skjól­veggi. Auk þess er hluti af hús­inu með viðarklæðningu sem drekk­ur í sig efni eins og eng­inn sé morg­undag­ur­inn þökk sé gul­um og app­el­sínu­gul­um viðvör­un­um sem komu á færi­bandi í vet­ur.

Ég ætla nú ekki að halda því fram að þessi vinna taki allt sum­arið, þetta eru svona tveir til þrír dag­ar. And­leg­ur und­ir­bún­ing­ur tek­ur hins veg­ar mun lengri tíma, jafn­vel al­veg þrjá til fjóra mánuði. Það þarf að ræða hvar við eig­um að byrja og hvar við eig­um að enda. Hvaða hluti af hús­inu sé verst far­inn eft­ir vet­ur­inn og þar fram eft­ir göt­un­um.

Á dög­un­um sagði vin­ur okk­ar, sem er mál­ari, að við gæt­um sparað okk­ur heil­mik­inn tíma með því að bera annað efni á húsið. Ef við tækj­um mið af ráðum hans mynd­um við sleppa við allt þetta stúss næsta sum­ar, þarnæsta sum­ar og jafn­vel þarþarnæsta sum­ar. Það hljómaði nátt­úr­lega of vel til að vera satt.

Síðustu ár hef­ur lífið í garðinum verið þannig að við erum alltaf að bera á húsið þegar vel viðrar, það er að segja þessa þrjá daga sem hanga þurr­ir. Hversu fyndið er það að eiga garð en geta aldrei flat­magað þar líkt og fólk væri á sól­ar­strönd, með lapp­irn­ar upp í loft og bók í hönd. Mál­ara­vin­ur okk­ar hef­ur líka sagt það óbeint að hann gæti nú al­veg tekið þetta verk­efni að sér gegn greiðslu, en ég tek það ekki í mál. Ég verð að fá að ganga í gegn­um þessa þján­ingu og finna fyr­ir henni í öll­um frum­um lík­am­ans. Þetta er ekki ósvipað því að fara í end­ur­vinnsl­una. Þangað fer ég reglu­lega með dós­ir til þess að fá óþægi­lega teng­ingu við raun­veru­leik­ann. Um dag­inn spurði ég mann­inn minn á laug­ar­degi hvort við ætt­um ekki að fara sam­an í end­ur­vinnsl­una og hann sagði nei. Þessi viðbrögð hristu upp í mér. Hvað átti hann við? Þá kom í ljós að hon­um finnst tíma sín­um illa varið með því að keyra í annað bæj­ar­fé­lag þegar hægt er að gefa börn­um dós­ir í fjár­öfl­un­ar­skyni þegar þau banka upp á.

Þetta var auðvitað al­veg rétt hjá hon­um en ég er bara ekki kom­in á þenn­an stað. Ég þarf að taka út refs­ingu fyr­ir of­drykkju á Diet Pepsi. Berja aðeins á mér. Ég þarf líka að verða fyr­ir von­brigðum þegar ég átta mig á því að fyr­ir­ferðar­mikl­ir plast­pok­ar með dós­um, sem virðast alltaf ryk­suga allt rými í bíl­skúr, duga ekki fyr­ir ham­borg­ara­til­boði fyr­ir fjóra úr lúgu­sjoppu. Samt snýst þetta ekki um pen­inga. Þegar ég er búin að jafna mig á von­brigðunum yfir því hvað það kom lít­ill pen­ing­ur inn á kortið líður mér samt svo vel. Finnst ég loks­ins hafa gert gagn.

Í máln­ing­ar­versl­un­inni þar sem við vor­um mætt á laug­ar­degi til að kaupa töfra­efnið rakst ég á fólk eins og okk­ur.

Elsku­legt af­greiðslu­fólk leiddi okk­ur í all­an sann­leik­ann um töfra­efnið sem á að bjarga okk­ur úr refsi­vist­inni. Eft­ir lang­an fyr­ir­lest­ur um að þetta væri í raun tvíþætt. Það þyrfti fyrst að bera eitt efni á, eina um­ferð, og svo þyrfti að bera annað efni á og best væri að taka alla­vega tvær um­ferðir til að full­komna verkið. Ég fann hvernig lífs­orka mín fjaraði út hægt og bít­andi. Það var held­ur ekki laust við að ég væri kom­in með mild­an bak­verk við til­hugs­un­ina um að þetta sum­arið yrðu þetta ekki bara tveir til þrír dag­ar held­ur tíu dag­ar, tvær vik­ur. Maður­inn minn tók stjórn­ina og sagði að við ætluðum að kaupa þetta allt og æddi að kass­an­um. Því miður eru efn­in svo um­hverf­i­s­væn að það er ekki einu sinni hægt að sniffa þau til að reyna að lina heima­til­bún­ar þján­ing­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda