„Ástin dró mig inn í þessa íbúð“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Ása Helga Hjör­leifs­dótt­ir leik­stjóri og hand­rits­höf­und­ur er gest­ur Heim­il­is­lífs þessa vik­una. Hún býr í sjarmer­andi íbúð í gamla Vest­ur­bæn­um ásamt eig­in­manni sín­um, Gunn­ari Þorra Pét­urs­syni, og son­um sín­um tveim­ur.

    Ása Helga er leik­stjóri kvik­mynd­ar­inn­ar Svar við bréfi Helgu sem er byggð á bók Berg­sveins Birg­is­son­ar. Svar við bréfi Helgu er önn­ur kvik­mynd Ásu Helgu en áður gerði hún Svan­inn sem vann til fjöl­margra verðlauna. 

    Þegar Ása Helga er spurð að því hvað hafi dregið hana inn í þessa íbúð seg­ir hún að það hafi verið ást­in. Gunn­ar eig­inmaður henn­ar bjó nefni­lega í íbúðinni þegar þau kynnt­ust. 

    „Ég var ný­flutt heim frá Banda­ríkj­un­um, þar sem ég var að læra kvik­mynda­gerð, þegar ég kynnt­ist Gunna mann­in­um mín­um á fyr­ir­lestri hjá mömmu minni,“ seg­ir Ása Helga.

    Hún seg­ir að kynni henn­ar við Gunn­ar hafi verið fljót að vinda upp á sig og nú búa þau ekki bara tvö í íbúðinni, held­ur fjög­ur þar sem þau eiga tvo drengi sam­an.  

    „Þessi íbúð er búin að þró­ast með okk­ur,“ seg­ir hún en til að byrja með voru þau með sitt­hvort vinnu­her­bergið í íbúðinni en nú hafa syn­irn­ir tekið þau yfir og á dög­un­um vegg­fóðruðu þau annað barna­her­bergið með afar fal­legu vegg­fóðri eins og sjá má í þætt­in­um Heim­il­is­lífi. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda