Selma býr á vinnustofunni með kettinum og elskar það

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Klæðsker­inn og kjóla­meist­ar­inn Selma Ragn­ars­dótt­ir er gest­ur Heim­il­is­lífs þessa vik­una. Selma leig­ir íbúð í miðbæ Reykja­vík­ur og hef­ur búið þar í um tvö ár. Hún ákvað að ein­falda líf sitt eft­ir að hún varð ein­hleyp. Hún vildi íbúð sem gæti líka verið vinnu­stofa og rúmaði hana og kött­inn. 

    Hér áður fyrr var Selma með sín­ar eig­in fatalín­ur sem hún seldi í versl­un­um en í dag er hún aðallega í því að sérsauma föt fyr­ir fólk og breyta föt­um. Hún er alin upp við það að fara vel með og nýta allt, henda engu. Selma kaup­ir helst aldrei neitt nýtt og heim­ilið ber þess merki. Það er svo­lítið eins og hún hafi búið í íbúðinni síðan 1970. 

    Á heim­il­inu er að finna göm­ul hús­gögn sem hún hef­ur sankað að sér í gegn­um tíðina. Þar er til dæm­is gam­all barna­vagn en faðir Selmu keypti hann í út­lönd­um þegar hann sigldi um heims­ins höf. 

    „Það er svo­lítið eins og ég hafi búið hérna síðan 1970,“ seg­ir Selma og hlær. 

    Selma seg­ist vera þakk­lát fyr­ir að hafa hnotið um íbúðina og seg­ir að það fari mjög vel um sig. Í íbúðinni eru all­ir vegg­ir græn­ir og líka öll loft. Þegar Selma er spurð að því hvort hún hafi málað í þess­um fal­lega lit er svarið nei. 

    „Þetta var svona þegar ég flutti inn,“ seg­ir hún. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda