Vigdís Másdóttir kynningar-og markaðsstjóri menningarmála í Kópavogi og Bergsteinn Sigurðsson nýráðinn umsjónarmaður Silfursins á RÚV, hafa sett fallega íbúð sína við Karfavog í Reykjavík á sölu. Íbúðin telur 131,5 fm og er hún á tveimur hæðum í endurbættu húsi sem reist var árið 1955.
Um er að ræða vel skipulagða og bjarta íbúð með sér inngangi í fjölbýlishúsi við Karfavog. Þar má til dæmis finna nýlega eldhúsinnréttingu frá IKEA sem er í dökkgráum lit og með vínkæli. Eldhús og stofa eru samliggjandi í björtu rými með stórum gluggum og eftirtektarverðum loftljósum. Risloft er yfir íbúðinni sem gefur henni skemmtilegan keim.
Í september var greint frá því að Bergsteinn og Vigdís væru farin hvort í sína áttina.