Þú færð ekki kraftmeiri húðmeðferð

EGF Power augnkremið er nýjasta vara BIOEFFECT.
EGF Power augnkremið er nýjasta vara BIOEFFECT. Ljósmynd/Aðsend

„BI­OEF­FECT setti fyrstu Power vör­una, EGF Power Cream, á markað árið 2021. Okk­ur fannst vanta vör­ur sem væru sér­stak­lega þróaðar fyr­ir þroskaða húð, fyr­ir þá sem þurfa meiri kraft og öfl­ugri inni­halds­efni. Power lín­unni hef­ur verið mjög vel tekið enda sjá­um við vör­urn­ar vinna kröft­ug­lega á öldrun­ar­ein­kenn­um húðar­inn­ar, sem er ein­mitt það sem viðskipta­vin­ir okk­ar leit­ast eft­ir,“ seg­ir Sigrún Dögg Guðjóns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri rann­sókna og þró­un­ar hjá BI­OEF­FECT en með henni starfar öfl­ugt vís­indat­eymi sem hef­ur það hlut­verk að þróa og rann­saka bæði mis­mun­andi inni­halds­efni og vör­ur, og einnig húðina og þau áhrif sem BI­OEF­FECT vör­urn­ar hafa á hana.

„Vís­indat­eymið okk­ar vinn­ur að stöðugum fram­förum og auk­inni þekk­ingu á húðfrum­um, vaxt­arþátt­um og virk­um inni­halds­efn­um og nýt­ir þá þekk­ingu til að besta ár­ang­ur­inn af notk­un BI­OEF­FECT húðvar­anna,“ seg­ir Sigrún sem hóf störf hjá BI­OEF­FECT í ág­úst árið 2022 þegar hún flutti aft­ur til Íslands eft­ir 20 ár í Kaup­manna­höfn.

Sigrún Dögg Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá BIOEFFECT
Sigrún Dögg Guðjóns­dótt­ir fram­kvæmda­stjóri rann­sókna og þró­un­ar hjá BI­OEF­FECT Ljós­mynd/​Aðsend

Hún seg­ir ein­stak­lega áhuga­vert að hafa um­sjón með vöru- og húðrann­sókn­um auk þess að sinna stöðugri þróun á vöru­lín­unni. Sjálf lauk hún B.Sc. prófi frá Há­skóla Íslands og kandí­dats­prófi í lækna­vís­ind­um frá Há­skól­an­um í Kaup­manna­höfn. „Það er gott að hafa bæði þenn­an fræðilega bak­grunn en ekki síður þá reynslu að hafa starfað á sviði húðsjúk­dóma­lækn­inga og sem sér­fræðing­ur í klín­ískri lyfjaþróun. Ég er mjög stolt af því mark­miði að all­ar vör­urn­ar okk­ar eru þróaðar og hannaðar með það að leiðarljósi að inni­halda ein­göngu efni sem hafa ákveðið hlut­verk, annað hvort fyr­ir húðina eða fyr­ir formúl­una sjálfa og í sam­an­b­urði við önn­ur merki þá eru mjög fá inni­halds­efni í vör­un­um okk­ar. Þar af leiðandi er þró­un­ar­vinn­an full af áskor­un­um en ekki minna skemmti­leg fyr­ir vikið og við erum mjög stolt af því að marg­ir með mjög viðkvæma húð nota vör­urn­ar okk­ar,“ seg­ir Sigrún og bæt­ir við að þeir þátt­tak­end­ur sem hafa verið með í klín­ísk­um húðrann­sókn­um á Power vör­un­um eru nú flest­ir orðnir fast­ir viðskipta­vin­ir vörumerk­is­ins sem er mik­ill gæðastimp­ill.

BIOEFFECT setti fyrstu Power vöruna, EGF Power Cream, á markað …
BI­OEF­FECT setti fyrstu Power vör­una, EGF Power Cream, á markað árið 2021. mbl.is/​Aðsend

Krem­in örva nátt­úru­lega kolla­genfram­leiðslu

Fal­leg og heil­brigð húð hef­ur verið í tísku að und­an­förnu í bland við létt­an farða og nátt­úru­legt út­lit. „Það er hægt að vinna með húð á öll­um aldri og mjög spenn­andi að búa til Power vör­urn­ar sem eru fyr­ir 35 ára og eldri. Þroskuð húð sýn­ir fleiri ein­kenni öldrun­ar, hún er með dýpri hrukk­ur, lita­breyt­ing­ar og minni stinn­leika. Í raun er Power lín­an fyr­ir húð sem er ekki eins þykk og þétt og hún áður var. Þetta er öfl­ug­asta lín­an okk­ar og inni­halds­efn­in í vör­un­um end­ur­spegla það,“ seg­ir Sigrún.

EGF BIOEFFECT Power línan er stílhrein og falleg.
EGF BI­OEF­FECT Power lín­an er stíl­hrein og fal­leg.

Fjöl­marg­ir eru farn­ir að sjá kosti þess að nota húðvör­ur frá BI­OEF­FECT vegna vaxt­arþátt­anna sem hvetja húðina til að örva nátt­úru­lega kolla­genfram­leiðslu á ör­ugg­an hátt. „Í Power Serum­inu eru tveir vaxt­arþætt­ir, EGF og KGF, sem fram­leidd­ir eru á Íslandi með plöntu­líf­tækni. Húðin okk­ar þekk­ir þá vel og veit ná­kvæm­lega hvernig hún á að nýta sér virkn­ina því vaxt­arþætt­irn­ir sem við not­um eru ná­kvæm eft­ir­lík­ing af því sem húðin fram­leiðir sjálf. Þeir þétta húðina og vinna þar af leiðandi á hrukk­um og fín­um línu og gefa húðinni meiri stinn­leika, styrkja ysta lag og auka raka henn­ar,“ seg­ir Sigrún.

EGF Power kremið eyk­ur raka um allt að 72%

Raki og nær­ing eru mjög mik­il­væg­ir þætt­ir í að halda húðinni heil­brigðri og í jafn­vægi á þess­um árs­tíma. „Sér­stak­lega á Íslandi því lofts­lagið er frek­ar þurrt og þegar kuld­inn kem­ur þarf að passa ein­stak­lega vel upp á húðina þar sem hún get­ur verið ber­skjölduð gagn­vart veðrinu. Þegar húðin eld­ist minnk­ar oft eig­in­leiki til að halda raka í húðinni. Þess vegna þarf öfl­ugri inni­halds­efni til að viðhalda heil­brigðri og ljóm­andi húð.“

Rann­sókn­ir sýna gagn­semi þess að breyta um húðvör­ur þegar árstíðirn­ar breyt­ast. „Það er jafn­vel nauðsyn­legt að nota þykk­ari formúl­ur með meiri fit­um og ol­í­um sem geta hjálpað húðinni mikið á vet­urna. Þegar klín­íska rann­sókn­in á EGF Power krem­inu var gerð sáum við aukn­ingu á raka í húðinni um allt að 72% sem sýn­ir hversu öfl­ugt og raka­gef­andi það er.“

Klín­ísk­ar rann­sókn­ir hafa verið gerðar á öll­um vör­um í Power lín­unni. „Því það er okk­ur mjög mik­il­vægt að geta sýnt fram á að vör­urn­ar raun­veru­lega virki og eru að gera það sem við segj­um þær gera. Þess vegna eru fram­kvæmd­ar mik­il­væg­ar rann­sókn­ir á vör­un­um okk­ar, bæði rann­sókn­ir sem við sjálf fram­kvæm­um en líka rann­sókn­ir í sam­starfi við óháða þriðja aðila. All­ar vör­urn­ar í Power lín­unni virka mjög vel á öldrun­ar­ein­kenn­um húðar­inn­ar. Húðin fær mjög fal­lega áferð og ljóma við reglu­lega notk­un á Power vör­un­um.“

Sigrún mæl­ir með því að panta tíma í VISIA húðmæl­ing­ar­tækið í versl­un BI­OEF­FECT á Hafn­ar­torgi svo hægt sé að finna rétt­ar vör­ur fyr­ir húð hvers og eins. 

Ser­um sem tek­ur sól­ar­blett­ina

Ser­um hafa aldrei verið vin­sælli en þau eru nú. „Power Serumið okk­ar er mjög kröft­ugt. Við vild­um gera ser­um fyr­ir trausta BI­OEF­FECT viðskipta­vini sem hafa notað EGF Serumið í mörg ár og eru til­bún­ir í kröft­ugri vöru. Í Power Serum­inu erum við með 2 vaxt­arþætti, EGF og KGF, þannig að virkn­in er mjög mik­il ásamt því að vera með annað spenn­andi inni­halds­efni sem heit­ir NAG eða N-acetyl-glucosam­in. NAG vinn­ur mjög vel á sól­ar­blett­um og sól­arskaða í húðinni sem kem­ur sí­fellt meira í ljós þegar húðin eld­ist. Power Serumið eyk­ur rak­ann í húðinni sem fær stinn­ara, slétt­ara og jafn­ara yf­ir­bragð,“ seg­ir Sigrún og minn­ir á að vana­lega er ser­um notað sem fyrsta var­an í húðrútín­unni áður en eitt­hvað annað fer á and­litið. „Áferðin er létt og serumið smýg­ur vel inn í húðina.“

EGF Power Serumið eykur rakann í húðinni sem fær stinnara, …
EGF Power Serumið eyk­ur rak­ann í húðinni sem fær stinn­ara, slétt­ara og jafn­ara yf­ir­bragð. Ljós­mynd/​Aðsend

EGF Power augnkremið er nýj­asta vara BI­OEF­FECT. „Við erum ein­stak­lega stolt af þess­ari vöru sem hef­ur hrein­lega slegið í gegn. Þegar við þróuðum hana vild­um við ein­mitt halda áfram að bjóða vöru fyr­ir viðskipta­vini okk­ar með þroskaða húð og þróa kraft­mikla vöru sem myndi virki­lega vinna á öldrun­ar­ein­kenn­um sem koma fram í kring­um aug­un. Augnsvæðið er yf­ir­leitt það svæði sem sýn­ir fyrstu ein­kenni öldrun­ar og húðin i kring­um aug­un er mun þynnri en húðin ann­ars staðar á and­lit­inu,“ seg­ir Sigrún og bæt­ir við að auk EGF sem eyk­ur fram­leiðslu á kolla­gen og teygj­an­leika húðar­inn­ar þá séu önn­ur mjög spenn­andi efni á borð við koff­ín í krem­inu.

„Koff­ín eyk­ur blóðflæðið í húðinni í kring­um aug­un og vinn­ur þar af leiðandi á þrota og hef­ur þann eig­in­leika líka að minnka ásýnd bauga. Í augnkrem­inu er líka efnið Bakuchi­ol sem oft er kallað plöntu-retínól. Það er unnið úr ind­verskri plöntu og hef­ur mikla virkni á húðina, vinn­ur á fín­um lín­um og hrukk­um og dökk­um lita­breyt­ing­um í húð. Það hef­ur svipaða virkni og retínól án þess að fram­kalla þær auka­verk­an­ir sem retínól get­ur haft. B3 víta­mínið niac­inami­de er einnig að finna í augnkrem­inu sem vinn­ur á baug­um og dökk­um lita­breyt­ing­um í húðinni, eyk­ur ljóma og styrk­ir varna­vegg húðar­inn­ar. Sera­míð er í augnkrem­inu en það er ein­stak­lega gott efni sem nær­ir húðina vel þannig að áferðin verður mýkri og eins­leit­ari. Svo er auðvitað fullt af öðrum frá­bær­um inni­halds­efn­um sem öll vinna vel sam­an og sjá til þess að virkni vör­unn­ar er sýni­leg,“ seg­ir Sigrún.

Augnsvæðið er yfirleitt það svæði sem sýnir fyrstu einkenni öldrunar …
Augnsvæðið er yf­ir­leitt það svæði sem sýn­ir fyrstu ein­kenni öldrun­ar og húðin i kring­um aug­un er mun þynnri en húðin ann­ars staðar á and­lit­inu. Ljós­mynd/​Aðsend

„Þannig sýn­um við okk­ar besta and­lit“

Sigrún not­ar sjálf BI­OEF­FECT vör­urn­ar og hef­ur gert í mörg ár. „Mér hef­ur alltaf fund­ist vör­urn­ar mjög spenn­andi og hef óbilandi áhuga á húðinni og hvers hún þarfn­ast og hvernig maður hugs­ar um hana á sem best­an og áhrifa­rík­ast­an hátt.“

Það er greini­legt að vís­inda­fólk sem rann­sak­ar vör­ur og inni­halds­efni dag hvern verður mjög kröfu­hart þegar kem­ur að vör­um til að setja á húðina. „Kröfu­hörð og gagn­rýn­in eru réttu orðin. Ég nota Power Serumið og svo skipti ég yfir í BI­OEF­FECT 30 daga meðferðina (e 30 Day Treatment) mjög reglu­lega. Nýja Power augnkremið nota ég kvölds og morgna. Eig­inmaður­inn minn er orðinn reglu­leg­ur not­andi af því líka. Á sumr­in nota ég Hydrat­ing kremið og EGF Power kremið á vet­urna.“

Fegr­un­araðgerðir sem hafa heppn­ast illa, hafa komið hug­mynd­inni um feg­urð húðar­inn­ar á öll­um aldri í tísku. „BI­OEF­FECT vör­urn­ar eru fyr­ir mjög breiðan ald­urs­hóp og öll kyn. Viðskipta­vin­ir okk­ar eru frá 25 ára aldri, þegar maður byrj­ar fyrst að nota virk­ar húðvör­ur og svo von­umst við til að fólki kaupi krem til æviloka því þegar við meðhöndl­um húðina okk­ar með góðum vör­um, sama á hvaða aldri við erum, þá kemst húðin í sitt besta form og þannig sýn­um við okk­ar besta and­lit,“ seg­ir hún og bæt­ir við að nær­andi inni­halds­efni sem húðin skil­ur veld­ur því að við fáum þetta flotta og eft­ir­sótta bjarta, gló­andi yf­ir­lit.

„Það er hægt að finna BI­OEF­FECT vör­ur fyr­ir all­ar húðteg­und­ir og góð húðrútína skil­ar sér alltaf í fal­legri og geislandi húð en lífs­stíll spil­ar einnig stórt hlut­verk, við meg­um ekki gleyma því. Reyk­ing­ar, sól­in og mataræði kem­ur fram í húðinni. Við þurf­um því að huga að stóra sam­heng­inu.“

Förðun­ar­mynd­bönd eru vin­sæl um þess­ar mund­ir og tísk­an í förðun sí­fellt að breyt­ast. „Útkom­an er þó yf­ir­leitt betri þegar und­ir­lagið er í sínu besta formi.“

All­ar vör­ur ganga fyr­ir hend­urn­ar líka

Má nota Power vör­ur á hend­urn­ar líka?

„Hend­urn­ar hafa ein­mitt fengið aukna at­hygli upp á síðkastið þar sem húðin á hönd­un­um er yf­ir­leitt minna var­in fyr­ir veðri og vind­um og fær sjaldn­ar sól­ar­vörn. Þar af leiðandi koma öldrun­ar­ein­kenni oft fyrr fram á hönd­um. Handserumið frá BI­OEF­FECT er því frá­bær vara þar sem hún nær­ir, vernd­ar og mýk­ir húðina á hönd­un­um. Inni­halds­efn­in eru EGF, B3 víta­mín, sera­míð og hý­aluronsýra sem hjálp­ar við að næra þurr­ar hend­ur, efla ysta varn­ar­lag húðar­inn­ar og draga úr lita­breyt­ing­um. Þetta er létt og þægi­leg gel formúla sem geng­ur vel inn í húðina. En að sjálf­sögðu má nota all­ar vör­urn­ar okk­ur á hend­urn­ar líka.“

Handserumið frá BIOEFFECT er frábær vara þar sem hún nærir, …
Handserumið frá BI­OEF­FECT er frá­bær vara þar sem hún nær­ir, vernd­ar og mýk­ir húðina á hönd­un­um. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda