Kasjúsósan sem Solla er sjúk í

Solla mælir með þessari sósu!
Solla mælir með þessari sósu! Skjáskot af glokorn.is

„Þessi sósa er góð á næst­um því allt! Ég hef gert ótal út­gáf­ur af henni en þessi grunn­ur er góður og nær­ing­ar­rík­ur og svo er hægt að bæta við öðrum krydd­um, reyktri papriku, chillipa­ste-i og fleiru sem ykk­ur dett­ur í hug,“ seg­ir Solla í færslu sem birt­ist á vefn­um Gló­korn. Svona hljóðar upp­skrift­in að sós­unni:

Hrá­efni:

1 dl kasjúhnet­ur, lagðar í bleyti í 2-4 klst
vatn (það á að rétt fljóta yfir hnet­urn­ar)
1 msk nær­ing­ar­ger (má sleppa ef ekki til)
1 msk sítr­ónusafi
1 daðla (má sleppa)
1 tsk lauk­duft
½ tsk Himalaya salt
½ hvít­lauksrif

Aðferð:

Allt sett í bland­ara og blandað þar til kekk­laust. Geym­ist í kæli í 5-7 daga. „Ef þið eigið ekki nær­ing­ar­ger eða það fæst ekki er hægt að auka aðeins lauk­duftið í staðinn,“ seg­ir Solla.

Solla er snillingur í eldhúsinu.
Solla er snill­ing­ur í eld­hús­inu. Golli / Kjart­an Þor­björns­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert