Núna er heldur betur tíminn til að koma sér aftur í heilsugírinn eftir hátíðarnar. Margir mikla það aðeins fyrir sér hvar er best að byrja og langaði mig því að deila með þér nokkrum ráðum.
Settu þér markmið - þú hefur heyrt þetta áður en þetta hvetur þig áfram og minnkar líkurnar á því að þú gefist upp!
Ef þú hefur ekki hreyft þig reglulega í langan tíma þá er nauðsynlegt að fara rólega af stað og að þjálfunin sé markviss, farðu í göngutúra, skelltu þér á námskeið, farðu til einkaþjálfara eða æfðu með mér heima í stofu, sama hvað þú velur þá er mikilvægt að fara rólega af stað.
Ef mataræðið þitt hefur farið algjörlega úr böndunum yfir hátíðarnar þá skaltu reyna að snúa blaðinu við en gott ráð er t.d að taka út sykurinn á virkum dögum, minnka skammtana og borða vel af ávöxtum og grænmeti, þetta hjálpar þér að snúa blaðinu við.
Mundu eftir litlu sigrunum, nauðsynlegt er að verðlauna sig á góðan hátt þegar hverju markmiði er náð.
Öll afrek byrja á ákvörðun um að reyna!
Sama hvaða markmið eða áramótaheit þú setur þér þá hef ég fulla trú á því að þú getir náð því, þú þarft að trúa því líka og þá ætti ekkert að stoppa þig.
Ef þú vilt komast að hjá mér í fjarþjálfun sem hefst 13.janúar ekki hika við að senda mér póst á annaeiriks@annaeiriks.is til að fá nánari upplýsingar!
Anna Eiríksdóttir
Deildarstjóri í Hreyfingu. Íþróttakennari, einkaþjálfari og eigandi annaeiriks.is sem er vefur fyrir konur sem býður uppá metnaðarfulla fjarþjálfun, uppskriftir, blogg o.fl.
Meira