c

Pistlar:

28. janúar 2025 kl. 15:36

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Kínverska ár Snáksins

KÍNVERSKA ÁR SNÁKSINSÁ morgun kveiknar nýtt Tungl og samhliða því fagna Kínverjar nýju ári. Árið framundan er ár Snáksins. Það kemur til með að verða ár róttækra breytinga, aðlögunar og úthalds og kalla fram hjá okkur sjálfum eiginleika eins og aðlögunarhæfni, greind, hæfni til að finna nýjar lausnir svo og aukið sjálfstraust. Við þurfum að læra að slíta þau bönd sem halda aftur af okkur, svo og tengslin við gömul áföll, samhliða því sem við fylgjum eftir markmiðum okkar af innra öryggi án þess að þurfa að útskýra fyrir öðrum þá breytingu sem er að verða innra með okkur.

SNÁKAR ERU SJÁLFSTÆÐIR

Snákar eru mjög sjálfstæðir og sjálfum sér nægir. Þeir eru ekki meðvirkir og í raun er árið 2025 árið til að losa sig við meðvirknina og styrkja sitt eigið sjálf. Einnig að losa sig við þann ótta sem á rætur sínar að rekja til atburða úr fortíðinni. Ár Snáksins er líkt og undirbúningur fyrir árið 2026 en það verður ár Hestsins.

Ár Hestsins verður ár innri krafts, ytri aðgerða í eigin lífi, þreks og ákveðins úthalds, styrks og ábyrgðar. Ári Hestsins fylgir mikill kraftur til breytinga á plánetunni okkar og við megum eiga von á því að á því ári verði þær breytingar sem eru að verða í sjálfsmeðvitund orðnar staðfastar.

ÚLFAR Í SAUÐAGÆRU

Kannski er ekki rétt að segja „Úlfar í sauðagæru“ þegar fjallað er um Snákinn, heldur vísa til þess að Snákurinn skiptir reglulega um ham og hamurinn er nokkurs konar gríma. Margt verður því gagnsætt á ári Snáksins og okkur kann að verða skyndilega ljóst þegar gríman (hamurinn) fellur hjá fólki, að þeir sem við höfum talið vera vini okkar hafa í raun verið leynilega að vinna gegn okkur. Gríman fellur ekki bara í persónulegum samböndum, heldur einnig innan ríkisstjórna og stofnana á alþjóðavettvangi sem við höfum treyst. Svik þeirra munu að fullu koma í ljós.

HIÐ GAMLA OG ÚRELTA

Þessi vakning er í eðlilegu flæði við orkuna í ári Snáksins, þar sem hinn gamli hamur úreltra og spilltra stofnana og flokka er að falla. Margir munu verða afhjúpaðir þegar hamur þeirra fellur á þessu ári. Það mun hafa áhrif á fólk bæði tilfinningalega, sálrænt og andlega, en margar þessar afhjúpanir munu gerast nánast sjálfkrafa á þessu ári kínverska Snáksins.

Falskt egó og tilgerðarlegar áætlanir og hvatir munu verða afhjúpaðar og ljósið mun lýsa upp myrkrið bæði innra með okkur sjálfum og öðrum. Fólk verður afhjúpað fyrir að ljúga, svindla og svíkja. Samhliða þessum uppljómunum eru líkur á að djúp sálfræðileg og andleg vinna eigi sér stað hjá þeim sem eru vitundarlega vaknaðir.

SNÁKURINN ER TÁKN ENDURFÆÐINGAR

Snákurinn er tákn endurfæðingar en til að geta endurfæðst, þarf hann fyrst að losa sig við gamla haminn. Snákurinn mun í annarri og þriðju víddinni beina ljósi að svikum, undirförulum áætlunum, lygum, blekkingum og gömlum úreltum ferlum, sem sumir eru að reyna að keyra áfram í gegn.

Hjá Snáknum ríkir innri samhæfing sem gerir honum kleift að endurskapa sjálfan sig. Á ári Snáksins munu þeir sem ekki eru að vinna í samræmi við orkuna sem er í gangi í heiminum afhjúpa sig sjálfir, því við getum ekki dregið til okkar það sem er ekki í samræmi við tíðni Snáksins. Þess vegna mun orka Snáksins afhjúpa bæði hinn sanna ásetning heimsins og fólks sem þar stjórnar.

Snákurinn mun beina ljósi að því hverjum og hverju hægt er að treysta og hverju ekki. Öllum steinum verður velt við til að afhjúpa sannleikann og losa okkur við það sem þjónar okkur ekki lengur. Þegar árinu lýkur mun hreinsun hins myrka ásetnings að mestu vera lokið og við getum haldið djörf og sterk, full af bjartsýni inn í ástríðufullt, ljómandi og kraftmikið ár Hestins.

ERFIÐUR SANNLEIKUR

Margir eiga eftir að neyðast til að horfast í augu við erfiða sannleika á þessu ári Snáksins. Ekki aðeins með því að viðukenna sína eigin skugga, heldur þann sannleika að ríkisstjórnir sem og önnur stjórnvöld hafa ekki starfað af heilindum. Þeir sem lengra eru komnir í hinni vitundarlegu vakningu eru líklegir til að verða þeim sem áföllin fá innan handar og styðja þá.

Sviptingar verða í fjármálum á þessu ári Snáksins og spillingarmál í kringum fjármál og peninga eiga eftir að koma upp á yfirborðið og sjokkera marga. Sviptingar munu einnig eiga sér stað í hinu svokallað „svarta hagkerfi“ eða undirheimahagkerfinu, en það þarf að stöðva. Það sem stundað er í myrkrinu verður dregið fram í ljósið á ári Snáksins. Allir gamlir hamir eru að verða úreltir og hið nýja gerir kröfu um traust, heilindi og viðurkenningu og leiðréttingu á hagsmunum heildarinnar, ekki einungis fárra innan hennar.

SJÁLFSSKOÐUN

Líklegt er því að þetta ár Snáksins verði tímabil mikillar sjálfsskoðunar og gera má ráð fyrir að margir leiti sér ráðgjafar og andlegrar leiðsagnar þegar stóru spurningarnar koma upp. Spurningar eins og  hvers vegna er ég hér, hver er tilgangur minn og hver er tilgangur lífsins? Á ári Snáksins mun fólk leita meira að tilgangi og merkingu í lífi sínu.

Margir munu slíta þau sambönd sem þeir eru í núna og margir munu skipta um störf. Umskiptin verða mikil, þegar gömlum ham er hent og fólk velur sér annan nýjan, sem gengur út frá öðrum og hærri hugmyndum um merkingu lífsins.

Fólk kemur til með að losa sig við hluti sem þjóna því ekki lengur og hugsanlega taka hundrað og áttatíu gráðu viðsnúning á lífi sínu og hefja algerlega nýtt upphaf eftir innri sálræna hreinsun og endurmat á eigin lífi.

HÆRRI TÍÐNI

Þeir einstaklingar sem eru í hækkunar eða uppstigningarferlinu í tíðni sinni, munu umbreytast frá sínu eldra sjálfi og losa sig algerlega við gömlu útgáfuna af sjálfum sér, samhliða því sem þeir aðlagast nýjum og breyttum ham. Þetta verður jákvætt ár fyrir þá, þeirra innri kraftur eflist og umbreytist í hærri persónulega meðvitund, sem líka þjónar heildinni.

Þeir sem hafa helgað sig því að hækka í tíðni árið 2025 ganga óttalausir fram á við, tilbúnir til að yfirvinna allar hindranir sem á leið þeirra verða, til að nýta sér tækifæri hinnar Nýju Jarðar af meiri staðfestu. Þetta ferli snýst um að gangast við hinum innri stjórnanda, taka stjórnina í eigin lífi og stýra af öryggi í gegnum árið framundan og takast á við þær hindranir sem upp kunna að koma með eindregnum vilja um að ná árangri. Ár Snáksins styður okkur því svo sannarlega í því að verða besta útgáfan af okkur sjálfum.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

SMELLTU HÉR ef þú vilt frekar horfa/hlusta á skýringarnar.

Mynd: canva.com

www.gudrunbergmann.is 

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún ruddi brautina þegar hún hóf að halda sjálfsræktarnámskeið árið 1990. Síðan þá hefur hún haldið fjölda námskeiða tengt heilsu og sjálfseflingu, aðallega kvenna, þótt karlmenn hafi líka slæðst með. Að auki hefur hún haldið fyrirlestra, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur einnig skrifað tuttugu bækur og fjölda greina, bæði á eigin vefsíðu - gudrunbergmann.is - og í blöð og tímarit. Nokkrar bóka hennar hafa verið gefnar út erlendis, bæði í Bandaríkjunum, Noregi, Austurríki og Þýskalandi. Þú finnur hana líka á YouTube og á Instagram.

Meira