Umræðan um fræolíur eða „seed oils” hefur tekið samfélagsmiðlum með stormi. En hvað eru þessar svokölluðu „seed oils”, afhverju ættum við að forðast þær og hvað ættum við að nota í staðinn?
Þetta er eitthvað sem ég mun kafa dýpra í greininni í dag.
Fræolíur eru olíur sem eru unnar úr fræjum plantna. Þær eru ódýrar í framleiðslu og því gjarnan notaðar til steikingar á skyndibita og settar í matvæli. Listinn yfir fræolíur í matvælum er nær óendanlegur en þær eru helst að finna í majónesi, sósum, jurtarjóma, ís, ásamt flestum innpökkuðum mat eins og snakk, brauð og kex.
Fræolíur samanstanda að allt að 30% daglegra kaloríuinntaka okkar í dag.
Dr. Cate Shanahan lífefnafræðingur og læknir er einn af leiðandi talskona þessara umræðu. Cate hefur einmitt nýlega gefið út bókina Dark Calories sem fjallar um skaðlega áhrif fræolía.
Cate hóf rannsóknarvinnu sína um fræolíur, í leit að því að getað svarað betur fyrir hver orsökin væri á bak við heilsubresti og sjúkdóma sjúklinga sinna. Á þeim tíma var mikið verið að tala um í læknisfræði hvernig ferli sem heitir oxunarálag sé helsta orsök margra heilsubresta og sjúkdóma, en þó óþekkt hvert nákvæmlega gæti ollið því.
Cate komst þá að því að fræolíur, þegar þær eru eldaðar við háan hita, valda akkúrat þessu oxunarálagi. Þetta oxunarálag hefur áhrif á frumur okkar, þar sem það skemmir frumuhimnur, eykur bólgur, stuðlar að hraðari öldrun og gerir okkur háð sykri. Langvarandi oxunarálag getur einnig aukið hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki og öðrum sjúkdómum. Sjálfsagt er fleira sem getur valdið oxunarálagi, en inntaka á fræolíum eru eitthvað sem við ættum öll vissulega að vera meðvituð um ef við viljum styðja við heilsu okkar og langlíf.
Hér koma þær fræolíur sem eru hvað skaðlegastar heilsunni að sögn Cate. Mikilvægt er að kanna hvort séu í matvælum okkar, svo hægt sé að forðast þær.
Hafið í huga að uppruni og vinnsluferli olíunnar skiptir gríðarlegu máli og gæti vel verið að hægt sé að finna einhverjar af þessum olíum lífrænar og kaldpressaðar, ekki hitaðar við of háan hita sem myndar oxunarálagið. Ef þessi olía er þó í þessum algengu matvæli sem við finnum útí búð er líklegt að slíkt um ræðir.
Olíurnar sem eru náttúrulega mettaðar fitur sem haldast nokkuð stöðugar við hitun og oxiderast þá ekki auðveldlega.
Allar olíur sem ég persónulega á alltaf til heima og nota mikið. Veljið ávallt olíurnar úr dökkri glerflösku til að tryggja gæði. Kókosolían er undanskilin og fæst í venjulegum glerkrukkum.
Kaldpressuð ólífuolía ætti að vera á hverju heimili enda fullkomin í eldamennskuna, t.d yfir salöt, í dressingar eða til þess að létt steikja. Ekki er ráðlagt að hita ólífuolíu við mjög mikin hita þar sem hún hefur ekki eins hátt hitaþol og t.d kókos- eða avokadó olían. Olífuolían er rík af andoxunarefnum, sem hjálpa til við að berjast gegn skemmdum sem oxun getur valdið ásamt því að draga úr bólgum.
Kókosolía hefur sérstaklega hátt hitaþol og því góð til eldunar eða steikingar. Einnig má bræða kókosolíuna og setja útí búst eða nota í hrákökur. Auk þess hefur Kókosolían eiginleika sem stuðla að betri meltingu og ónæmiskerfi.
Avokadóolía hefur að auki hátt hitaþol og því kjörin í eldamennsku eða til steikingar. Olían er fljótandi og nokkuð hlutlaust á bragðið og góður grunnur í dressingar.. Avocadóolían er einnig rík anoxunarefna sem getur hjálpað til að draga úr bólgum og varið frumur gegn skemmdum.
Gamla mýtan um að smjör er óhollt fyrir okkur hefur löngu verið afsannað. Gamla góða íslenska smjörið er í raun kjörin til eldamennsku enda höfum við aðgengi að einu hreinasta smjöri sem völ er á. Passið ykkur þó á því að smjör mun brenna við of háan hita og því gæti ghee verið betri kosturinn. Ef þú þekkir ekki ghee, þá er það í raun hreinsað smjör eða á ensku Clarified butter. Hægt er að kaupa Ghee eða útbúa það sjálf.
Það að það getur reynst yfirþyrmandi að taka þetta skref að taka út fræolíur í mataræðinu, maður hugsar ef til vill með sér „hvað á ég þá að kaupa og borða?”
Íslendingar eru einnig oft mjög hrifin af sósunum sínum, sem því miður (spolier alert) innihalda nær allar fræolíur! Einnig má hafa í huga að margar vegan afurðir eru fullar af fræolíum sem gerir þær ekki endilega hollan kost.
Ef þú vilt fá enn frekari handleiðslu í að taka mataræðið og heilsuna í gegn, mæli ég með að kynna þér áskrift okkar. Þar erum við búin að skoða bakvið innihaldslýsinga matvæla fyrir þig og segjum þér hvernig best er að fara að. Þú færð einfalt matarplan í hverri viku með nýjum uppskriftum sem styðja við orku og ljóma ásamt innkaupalista, fræðslu og hugarvinnu.
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi, heilsukokkur og stofnandi Lifðu til fulls