Jólailmurinn fer brátt af að fylla öll heimili og fátt toppar lyktina af nýbökuðum smákökum á köldum vetrardegi.
Það er bara svo huggulegt að eiga eitthvað sem þú getur nartað í og hvað þá með góðri samvisku.
Það er einfalt að skipta út hefðbundnum hvítum sykri fyrir náttúrulegri sætu í jólabakstrinum án þess að skerða bragð eða að nokkur setji útá það. Hér eru nokkur náttúruleg sætuefni (þá á ég við sætuefni sem fást frá náttúrunnar hendi en eru ekki unnin sem sykuralkahól) sem má skipta út fyrir í jólabakstri. Sjálfsagt er listinn ekki tæmandi, en hann samsvarar uppgefið magn af einum bolla af hefðbundnum hvítum sykri.
Sjálfsagt má minnka magn sætu í uppskriftium ef þú ert ekki vön að neyta sykurs daglega, auk þess finnur maður oft ekki mun ef magn sætu er minnkað. Það er öruggast að skipta út dufti fyrir duft og vöka fyrir vöka til að passa upp á áferð uppskriftar.
Hægt er að nálgast sætuefnin í heilsuvöruverslunum og mörgum verslunum í dag og alltaf mikilvægt að kaupa lífrænt og/eða gæða vöru þar sem hún inniheldur fleiri næringarefni, bragðast gjarnan betur og er hollari fyrir þig.
Tryggðu þér Hátíðarpakkann frá Lifðu til fulls í dag á 70% afsætti með því að smella hér. Hann inniheldur meðal annars orkuríkar og sektarlausar smákökur, jólamatseðil með uppáhalds hátíðarréttum Júlíu og uppskriftir af hátíðardrykkjum sem auka orku, efla brennslu og draga úr bjúg.
Skapaðu ljómandi, sykur minni og nærandi jól.
Heilsa og hamingja,