Mikið stuð á þorrablóti Íslendinga í Köben

Það var mikið stuð á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn síðastliðna helgi!
Það var mikið stuð á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn síðastliðna helgi! Samsett mynd

Það vantaði ekki upp á stuðið og stemn­ing­una meðal Íslend­inga í Kaup­manna­höfn síðastliðinn laug­ar­dag þegar Íslend­inga­fé­lagið í Kaup­manna­höfn og Icelanda­ir héldu glæsi­legt þorra­blót á Norður­bryggju.

Alls voru 220 manns sem mættu á þorra­blótið í ár, en miðarn­ir seld­ust upp á inn­an við viku og því komust færri að en vildu. Ýmsar kræs­ing­ar voru í boði, allt frá hinum hefðbundna þorramat sem er sann­ar­lega ómiss­andi yfir í sæt­ar kök­ur, kon­fekt og lí­kjör.

Hljóm­sveit­in Brim­nes frá Vest­manna­eyj­um hélt stuðinu uppi á þorra­blót­inu, en af mynd­um að dæma var dans­gólfið troðfullt þegar leið á kvöldið. Stærsti styrkt­araðili þorra­blóts­ins er Icelanda­ir sem aðstoðaði við inn­flutn­ing á mat frá Íslandi og kom hljóm­sveit­inni til Kaup­manna­hafn­ar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda