Óskar Magnússon rithöfundur og stjórnarformaður Eimskips, fagnaði 70 ára afmæli sínu á dögunum á heimili sínu í Fljótshlíðinni. Vel var mætt í afmælið enda er Óskar vinsæll og vinamargur.
„Ég bauð 3000 manns, öllum vinum mínum,“ segir Óskar sem bauð öllum Facebook-vinum sínum í afmælið.
„Ég hafði nettan fyrirvara í boðinu þannig að menn skildu það, sem betur fer, að ég yrði ekki rosalega móðgaður ef þeir kæmust ekki. Það komu svona 150 manns,“ segir hann.
Hvernig tilfinning er það að verða sjötugur?
„Ég held að það sé engin sérstök tilfinning. Það er miklu meiri tilfinning að hitta allt þetta fólk. Aldurinn kemst ekkert að á svona degi,“ segir Óskar.
Ertu duglegur að rækta vini þína?
„Ég held að maður þurfti ekki að rækta vini sína eða þeir mig. Þetta gerist allt að sjálfu sér,“ segir hann og bætir við:
„Það gildir enn hið fornkveðna, maður er manns gaman,“ segir hann sæll og glaður með daginn.