Íslenska tónlistarkonan Una Torfa, sem kom eins og ferskur andblær inn í íslenskt tónlistarlíf, fagnaði útgáfu nýjustu plötu sinnar, Sundurlaus samtöl, í sannkölluðu blíðviðri á sumardaginn fyrsta.
Útgáfuhófið var haldið í einni þekktustu plötubúð landsins, Smekkleysu. Vinir og vandamenn Unu voru þar samankomnir og fögnuðu ásamt tónlistarkonunni.
Ölgerðin bauð upp á virknidrykkinn Mist og freyðivín, enda tilefni til að skála.
Una Torfa skálaði ásamt vinum og vandamönnum.
Ljósmynd/Einar Birgir
Siggi Gunnars lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
Ljósmynd/Einar Birgir
Stjarna dagsins fékk ótal faðmlög.
Ljósmynd/Einar Birgir
Það var rífandi stemning.
Ljósmynd/Einar Birgir
Erna Hrönn og Siggi Gunnars voru í sólskinsskapi.
Ljósmynd/Einar Birgir
Gestir nutu sín vel.
Ljósmynd/Einar Birgir
Una Torfa.
Ljósmynd/Einar Birgir
Kærleikurinn allsráðandi.
Ljósmynd/Una Torfa
Andrea Jónsdóttir, útvarpskona og plötusnúður, var í miklu stuði.
Ljósmynd/Einar Birgir
Stuð og stemning.
Ljósmynd/Einar Birgir
Mist var drykkur dagsins.
Ljósmynd/Einar Birgir
Viðstaddir voru í góðum fíling.
Ljósmynd/Einar Birgir
Það var mikið líf og fjör.
Ljósmynd/Einar Birgir