Þekkir þú fjallið? var samsýning Fatasöfnunar Rauða krossins, Hringrásarklasans og námsbrautar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands á nýliðnum HönnunarMars. Sýningin var haldin í fallegu gróðurhúsi í bakgarðinum hjá Exeter-hótelinu við Tryggvagötu.
Hugmyndin var að varpa ljósi á ofgnótt textíls og mikilvægi þess að fólk og fyrirtæki vinni í sameiningu að því að draga úr sóun og skapa hringrás textíls, náttúrunni og framtíðarkynslóðum til heilla.
Fatasöfnun Rauða krossins og námsbraut í fatahönnun við Listaháskóla Íslands hafa síðasta áratuginn staðið að verkefninu Misbrigði. Nemendur á öðru ári hanna þrjá alklæðnaði úr notuðum, ósöluhæfum fatnaði og textíl.
Fjölmargir kíktu á sýninguna
Ungir sem aldnir lögðu leið sína á sýninguna en þar mátti sjá textílfjall eða eitt tonn af textíl sem komið hafði verið fyrir í gróðurhúsinu ásamt ljósmyndum af verkefnum nemenda í Misbrigði IX.
Með verkefninu fá nemendur tækifæri til að vinna með textíl sem til fellur, með tilheyrandi áhrifum á hönnunarferlið og fá um leið innsýn og skilning á þeim áhrifum sem fataiðnaðurinn hefur á samfélög og umhverfi.
Guðbjörg Rut Pálmadóttir teymisstjóri Fatasöfnunar Rauða krossins sagði frá því hvernig hugmyndin að verkefninu Misbrigði kviknaði fyrir 10 árum síðan og hvernig verkefnið hefur vaxið og dafnað í gegnum árin.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Mikil stemning var á svæðinu.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Ragna Sigríður Bjarnadóttir fagstjóri í fatahönnun við Listaháskóla Íslands flutti pistil sem hún skrifaði fyrir Rúv um vorið, peysuveður og hringrásina.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Gestir ræddu saman.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Þorbjörg Sandra Bakke teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun fram fyrir hönd Hringrásarklasans og sagði frá hlutverki klasans í að flýta fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis hér á landi með því að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem kunna að vera til staðar og lyfta því upp sem vel er gert.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Sýningin vakti mikla athygli.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Ljósmyndir af verkefnum nemenda héngu víðsvegar um gróðurhúsið.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Eitt tonn af textíl.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Fólk var mjög áhugasamt um verkefnið.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Þessi unga dama kynnti sér sýninguna.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Það er ótrúlegt að sjá svona mikið magn af textíl.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Gestum var boðið upp á Egils Kristal.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Þarna má sjá glitta í ljósmyndum af verkefnum nemenda.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Það ríkti góð stemning.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Sýningargestur.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Sýningargestir nutu veðurblíðunnar.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Þorbjörg Sandra Bakke teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun ræddi við gesti.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Fjölmennt var á viðburðum HönnunarMars.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Þessum var annt um málefnið.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Sýningin vakti upp ýmsar pælingar.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Verkefnið vakti ómælda athygli.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Þekkir þú fjallið?
Ljósmynd/Eygló Gísla
Verkefni nemenda voru af ýmsum toga.
Ljósmynd/Eygló Gísla
Guðbjörg Rut Pálmadóttir teymisstjóri Fatasöfnunar Rauða krossins ásamt sýningargesti.
Ljósmynd/Eygló Gísla