Það var stuð og stemning í bókabúð Forlagsins á Granda síðastliðin fimmtudag þegar blaðamaðurinn og rithöfundurinn Ragnhildur Þrastardóttir bauð til útgáfuteitis í tilefni að útgáfu fyrstu skáldsögu hennar, Eyja.
Ragnhildur bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, í ár. Bókin fjallar um flókin fjölskyldutengsl, brengluð samskipti og sár sem ekki gróa. Fagnaðarlætin leyndu ekki á sér þegar Ragnhildur tók við verðlaununum og í kjölfarið las hún upp úr fyrsta kafla bókarinnar.
Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu á föstudaginn sagði Ragnhildur verðlaunin hafa mikla þýðingu fyrir sig.
„Sérstaklega það að Forlagið er í raun og veru tilbúið að taka séns á manni og það er svolítið það sem er að gerast í þessum verðlaunum, að prófa að birta einhverja nýja rödd sem það veit ekkert hvernig fólki líkar við. Þannig að það hefur mikla þýðingu fyrir mig að fá loksins að gefa út og að þeim finnist það skipta máli að þessi saga fái að heyrast,“ sagði Ragnhildur.