Listakonurnar Ýrúari og Rebekka Ashley opnuðu sýningu í Góða hirðinum á dögunum og fengu Hermigervill til þess að halda uppi stuðinu á meðan á opnuninni stóð.
Ýrúrarí er þekkt fyrir prjón, húmor, og klæðilega list, með áherslu á sjálfbærni og hringrás textílefna. Hún hefur undanfarin ár unnið að því að endurbæta og breyta gömlum peysum úr fataflokkunarstöðvum með því að gefa þeim nýjan persónuleika og andlit. Markmiðið er að auka gildi hverrar peysu með handverki og persónusköpun sem gefur nýjum eiganda tilfinningalegt gildi sem dregur úr líkum á því að peysan endi í ruslinu. Ýrúrarí leggur ríka áherslu á leikgleði og húmor.
Rebekka Ashley gramsar í gömlum raftækjaúrgangi og nýr til undurfagra og framúrstefnulega listaverka og nytjamuni. Hún prjónar og heklar úr rafmagnsköplum teppi, stóla og flíkur. Íslendingar eru Evrópumeistarar í raftækjaúrgangi og því brýnt að hugsa og þróa nýjar leiðir með hann.
Eins og sjá má er hægt að búa til margt fallegt úr gömlum varningi sem hættur var að þjóna tilgangi sínum.