Fegurðin í öllu sínu veldi

Helga Páley Friðþjófsdóttir, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Elísabet Alma Svendsen og …
Helga Páley Friðþjófsdóttir, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Elísabet Alma Svendsen og Sunna Axels. Ljósmynd/Sunna Ben

Síðastliðinn laugardag opnaðu tvær einkasýningar í Listval. Sýningin Flauelstjald, með verkum eftir Helgu Páleyju Friðþjófsdóttur og Púls með verkum eftir Hólmfríði Sunnu Guðmundsdóttur.

Helga Páley Friðþjófsdóttir.
Helga Páley Friðþjófsdóttir. Ljósmynd/Sunna Ben

Helga Páley er upptekin af teikningu í verkum sínum en á sýningunni kannar hún mörk miðilsins með því að yfirfæra teikninguna á striga og aðra miðla. Á sýningunni Flauelstjald má sjá verk á pappír og striga þar sem teikningin er undirstaða verkanna. 

Jóhann Örn, Sigurlaug, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Guðmundur og Kjartan.
Jóhann Örn, Sigurlaug, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Guðmundur og Kjartan. Ljósmynd/Sunna Ben

Á sýningunni Púls tekst Hólmfríður Sunna á við síkvikt eðli og óróleika náttúrunnar. Allt springur út og að lokum dofnar allt. Rík efniskennd og áferð eru áberandi en þau gefa óljósa tilfinningu hvort um sé að ræða hold, landslag, örheim eða kynjaverur. Olía og viðkvæm efni eins og kol og þurrpastel flæða saman en það er mikilvægur partur af sköpunarferlinu að efnin vinni sjálfstætt og renni saman á óvæntan hátt. 

Bertrand Kirschinhofer og Hjörtur Matthías Skúlason.
Bertrand Kirschinhofer og Hjörtur Matthías Skúlason. Ljósmynd/Sunna Ben

Eins og sjá má á myndunum voru allir í essinu sínu opnuninni enda margt fallegt til að horfa á sem gleður augað. 

Guðmundur Thoroddsen.
Guðmundur Thoroddsen. Ljósmynd/Sunna Ben
Lísbet Harðardóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Lísbet Harðardóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Sunna Ben
Daníel Bjarnason og Elísabet Alma Svendsen.
Daníel Bjarnason og Elísabet Alma Svendsen. Ljósmynd/Sunna Ben
Þórdís Erla Zoega ásamt börnunum sínum.
Þórdís Erla Zoega ásamt börnunum sínum. Ljósmynd/Sunna Ben
Helga Laufey Ásgeirsdóttir og Ólafur Daði Eggertsson.
Helga Laufey Ásgeirsdóttir og Ólafur Daði Eggertsson. Ljósmynd/Sunna Ben
Ársæll Þór Ingvason faðmar dóttur sína.
Ársæll Þór Ingvason faðmar dóttur sína. Ljósmynd/Sunna Ben
Hjördís Gestsdóttir og Steingrímur Gauti ásamt dóttur sinni.
Hjördís Gestsdóttir og Steingrímur Gauti ásamt dóttur sinni. Ljósmynd/Sunna Ben
Helga Páley Friðþjófsdóttir, Ólöf Rut Stefánsdóttir, Hrafnkell Guðmundsson og Logi …
Helga Páley Friðþjófsdóttir, Ólöf Rut Stefánsdóttir, Hrafnkell Guðmundsson og Logi Leo Gunnarsson. Ljósmynd/Sunna Ben
Kristín Morthens ásamt dóttur sinni.
Kristín Morthens ásamt dóttur sinni. Ljósmynd/Sunna Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál