Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir var með kosningavöku í Björtu loftum í Hörpu í gærkvöldi. Góð stemningin var á meðal gesta en líklega var hún ekki í samræmi við atkvæðin sem komu upp úr kjörkössunum. Í aðdraganda kosninganna leit út fyrir að Halla Hrund yrði næsti forseti en hún mældist langhæst í skoðanakönnunum á ákveðnu tímabili.
Halla Hrund hlaut 15,5% atkvæða í kosningunum og varð í þriðja sæti. Halla Tómasdóttir fékk flest atkvæði eða 34,3% greiddra atkvæða. Katrín Jakobsdóttir hlaut 25,5% og var í öðru sæti.
Arnþór Birkisson ljósmyndari Morgunblaðsins og mbl.is var á vaktinni í gær og fangaði stemninguna á kosningavöku Höllu Hrundar. Af myndunum að dæma var einn maður í langmesta stuðinu. Það var Þórólfur Árnason, fyrrverandi forstjóri Samgöngustofu og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík.