Sigríður Snævarr lét sig ekki vanta

Sigríður Snævarr lét sig ekki vanta en hún var fyrsta …
Sigríður Snævarr lét sig ekki vanta en hún var fyrsta Íslenska konan sem varð sendiherra. Ljósmynd/Aðsend

Yfir 40 sprotateymi skráðu sig til leiks í Superclass Startup Supernova, sem eru vinnustofur fyrir frumkvöðla, sem fram fór í Sykursalnum í Grósku fyrir helgi. Markmiðið með Superclass er að undirbúa teymin til þess að sækja um í Startup Supernova-hraðalinn sem verður hefst í fimmta sinn eftir Verslunarmannahelgi. Sigríður Snævarr lét sig ekki vanta en hún var fyrsta konan til þess að verða sendiherra. 

Reynsluboltar úr frumkvöðlasenunni og ýmsir sérfræðingar úr atvinnulífinu komu til að miðla þekkingu sinni og hjálpa sprotateymunum að gera 18 mánaða aðgerðaráætlun fyrir verkefnin sín. Meðal fyrirlesara voru Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova sem lagði áherslu á í erindi sínu mikilvægi þess að byggja upp sterkt samheldið teymi. Tryggvi Þorgeirsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Sidekick Health, kom líka fram og fór yfir hvernig best er að ná í viðskiptavini og skala fyrirtæki. Jón Ingi Benediktsson, sérfræðingur hjá háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu kenndi vinnustofu um gerð aðgerðaráætlana sprotafyrirtækja og Jason Zhangxiaoyu, landstjóri Huawei Iceland fræddi viðstadda um tækifærin sem 5G- tæknin býður upp á. T

„Við sjáum vel þegar við keyrum vinnustofur eins og Superclass hvað það er mikil gróska í nýsköpunarsenunni á Íslandi. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttur hópur sótti Superclass í ár en um 30% þátttakenda er af erlendum uppruna. Við hlökkum til að lesa yfir umsóknir í hraðalinn en umsóknarfrestur er til 23. júní. Teymin tíu sem fá sæti í hraðlinum verða síðan tilkynnt þann 11. júlí næstkomandi,” segir Magnús Daði Eyjólfsson verkefnastjóri Startup Supernova hraðalsins. 

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, Framkvæmdastjóri KLAK ræðir við sprotateymi á Superclass …
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, Framkvæmdastjóri KLAK ræðir við sprotateymi á Superclass Startup Supernova. Ljósmynd/Aðsend
Maria Punzi lögmaður hjá Hoiberg.
Maria Punzi lögmaður hjá Hoiberg. Ljósmynd/Aðsend
Margrét Tryggvadóttir forstjóriNOVA.
Margrét Tryggvadóttir forstjóriNOVA. Ljósmynd/Aðsend
Sunna Halla Einarsdóttir fjármálastjóri KLAK.
Sunna Halla Einarsdóttir fjármálastjóri KLAK. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Michael J. Wiatr fjárfestir hjá Antler (Nordics).
Michael J. Wiatr fjárfestir hjá Antler (Nordics). Ljósmynd/Aðsend
Tryggvi Þorgeirsson stofnandi og framkvæmdastjóri Sidekick Health.
Tryggvi Þorgeirsson stofnandi og framkvæmdastjóri Sidekick Health. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Hekla Arnardóttir fjárfestir hjá Crowberry Capital.
Hekla Arnardóttir fjárfestir hjá Crowberry Capital. Ljósmynd/Aðsend
Jason Zhang landstjóri hjá Huawei Iceland.
Jason Zhang landstjóri hjá Huawei Iceland. Ljósmynd/Aðsend
Jóhann Guðbjargarson stofnandi og framkvæmdastjóri Plaio.
Jóhann Guðbjargarson stofnandi og framkvæmdastjóri Plaio. Ljósmynd/Aðsend
Frumkvöðlar.
Frumkvöðlar. Ljósmynd/Aðsend
Freyr Friðfinnsson alþjóðafulltrúi KLAK - Icelandic Startups.
Freyr Friðfinnsson alþjóðafulltrúi KLAK - Icelandic Startups. Ljósmynd/Aðsend
Frumkvöðlar.
Frumkvöðlar. Ljósmynd/Aðsend
Magnús Daði Eyjólfsson verkefnastjóri Startup SuperNova hraðalsins.
Magnús Daði Eyjólfsson verkefnastjóri Startup SuperNova hraðalsins. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál