„Opnunin er eins og gefur að skilja gríðarlega mikilvægur áfangi fyrir starfsemi okkar og það er mikil tilhlökkun meðal starfsfólks að geta stuðlað að góðu aðgengi fyrir fólk í frjósemisferli þar sem áhersla er lögð á hlýju og samkennd,” segir Þórir Harðarson, sérfræðingur í frjósemi og einn stofnenda Sunnu frjósemi sem hélt opnunarhóf á dögunum en fyrirtækið var formlega opnað 18. október.
„Frjósemisvandi er eitthvað það erfiðasta sem fólk gengur í gegnum og við trúum því að frjósemismeðferð eigi að vera manneskjuleg og styðjandi. Sunna mun leggja áherslu á nærgætni, hlýju og samkennd og skapa umhverfi þar sem fólk finnur fyrir öryggi og stuðningi,” segir segir Ingunn Jónsdóttir, einn stofnenda Sunnu frjósemi.
Svanhildur Erla Traustadóttir, Hrefna Rós Hlynsdóttir og Kolbrún Pálína Helgadóttir.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Jenný Eiríksdóttir og Klara.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
María Rut Baldursdóttir, formaður Tilveru, og Hildur Dís Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Sunnu.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Rut Gunnarsdóttir, Orri Pétursson, Ingunn Jónsdóttir, kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir og meðeigandi Sunnu
og Annie Brynhildur Sigfúsdóttir kvensjúkdómalæknir.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra er hér fyrir miðri mynd.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Hörður Þórhallsson, forstjóri Ósa.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir